Leiksýning á heimsmælikvarða sem fólk verður að sjá og tónleikar á heimsmælikvarða sem fólk verður að mæta á!<br /> <br /> Ástæða þessa félagsrits er kannski ekki alveg það sem ætlast er til af manni en hér ætla ég að segja frá leiksýningu sem ég tek þátt í, í þeirri von að einhverjir gestapóar drífi sig að horfa á kallinn bæði leika og spila tónlist. Enn fremur er ég líka að auglýsa tónleika sem hljómsveitin mín heldur 28. maí.
Orbis Terræ-ORA
Orbis Terræ-ORA er verk sem spyr spurninga, verk sem ekki endilega svarar spurningunum en fjölgar þeim all verulega. Hvenær verður þjóðmenning að stríðsmenningu? Hvernig gerist þetta? Af hverju gerist þetta?
Sýningin fer fram í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Kjarni sýningarinnar er leikverk eftir Hrund Gunnsteinsdóttur sem fjallar um konur sem hittast aftur eftir langvarandi stríð. Gestir eru leiddir um húsið þar sem ýmislegt er gert meðal annars til fróðleiks og skemmtunar. Hljómsveitin Varsjárbandalagið leikur dálítið lausum hala í sýningunni og skapar ákaflega skemmtilega stemmningu.
Ég hvet alla til að fara og sjá þessa sýningu!
Stórtónleikar Hjörleifs Valssonar, Vadims Fedorovs og Varsjárbandalagsins
Hljómsveitin Varsjárbandalagið var stofnuð í febrúar í kringum þáttöku hennar í leikverkinu Orbis Terræ-ORA. Þegar æfingar voru komnar af stað þá var ákveðið að bandið myndi gera eitthvað meira en bara spila í leiksýningunni. Eitt leiddi af öðru og nú ætlar Varsjárbandalagið að blása til tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði 28. maí kl 20.00. Hjörleifur Valsson er einn eftirsóttasti fiðluleikari landsins og einn af heimsins færustu fiðluleikurum. Hann spilar við hátíðleg tækifæri á Stradivarius fiðlu sem hann fékk til afnota fyrir nokkrum árum. Vadim Fedorov hefur búið á Íslandi undanfarin misseri og leikið á harmonikku auk þess að kenna í tónlistarskólum víða um land. Hann er talinn einn af bestu harmonikkuleikurum heims. Hann elti ástina til Íslands og við njótum góðs af því.
Hlakka til að sjá ykkur á báðum þessum viðburðum.
Þakka þér þetta hlebbi, þá er víst best að maður skelli í lás og láti sig hverfa fyrst HERRA hlebbi þolir ekki smáræði. Veriði sæl!
Ívar - vjer erum þess fullvissir að lang flestir gestanna hjer þola þetta "smáræði" fullkomlega. Tökum vjer því eindregið undir með Texa [Hefst handa við að saga sundur lásinn en gengur illa].
Eins og sjá má af orðabelgjum hér á undan var ég aðeins að dissa Ívar fyrir að auglýsa hérna. Það var alls ekki illa meint en ég er annálaður friðarins maður (enda virkur félagi í Friði 2000) og hef því eytt öllu dissinu. Hver veit svo nema maður skelli sér bara á þessa menningarviðburði?
Eg hef átt í samskiptum við heiðursmanninn hlewagastiR um stóra djókmálið. Hann hefur skýrt frá sínum sjónarmiðum og ég mínum. Hann bauðst að fyrra bragði til að hreinsa út spaugið en ég sagði að þess gerðist ekki þörf þar sem sumt af því var verulega spaugilegt. En við hlebbi skiljum sáttir og erum búnir að kyssast... blautt.
Hins vegar þá er staðan sú að ég hef lítið verið með á Gestapó undanfarið og ætlaði ég að nota þetta sem átyllu fyrir því að hverfa á braut. Ég reyndar varð pínu fúll út í hlebba og hafði í alvöru verið að spá í að hætta en þarna var líka komin góð ástæða til að sinna heimili og fjölskyldu og hætta að eyða tíma í sýndarvini.
Sjáumst annað hvort í raunheimum í sumar eða hreinlega hér í haust... ef það verða ekki allir hættir.
Bara ræflar eins og Limbri láta hlebbA fæla sig í burtu. En hann er líka grenjuskjóða svo það var svosem viðbúið. Þú hefðir nú samt líklega ekkert þurft að hætta. Ef ég þekki háttvirta Ritstjórn rétt þá loka þeir passlega þegar prófin eru búin hjá öllum. Menn verða jú að komast í Atlavík að grilla!
En að félagsritinu. Mér finnst þetta hljóma sem mjög spennandi leikrit og myndi pottþétt íhuga það allt að tvisvar að sjá það, ef ég ætti nú heima á eldgosakögglinum Íslandi... og svo ekki fara að sjá það þar sem ég nenni aldrei í leikhús.
Draaama!
Það var eiginlega kominn tími á svoleiðis - þetta var orðið hálfleiðinlegt eitthvað.
Og hér átti ég við rimmuna milli Ívars og Hlebba, ekki leikverkið sem Ívar er að auglýsa - þó hið síðara hljómi alveg sæmilega spennandi.
Og nú áttum vjer oss á öðru hugsanlegu drama, nú í ríkisstjórn Baggalútíu: Orðið sýndarvinir sem Ívar notar gæti vísað til vel dulbúinna óvina ríkisins [Fölnar upp og hefst handa við að kanna hvort e.t.v. sje alla gestina hjer, þar á meðal forseta Baggalútíu, að finna á listanum yfir óvini ríkisins].
[Þreifar á eigin kroppi]
Ég virðist allavega ekki vera sýndarvinur - nema tálsýnin sé það fullkomin að hún nái jafnframt yfir snertiskynið.
Víst er að ég myndi mæta, væri ég í þessari heimsálfunni. En svo er því miður ekki, þannig að ég sendi bara bestu kveðjur.
Þarfi sæll: það var aldrei rimma af minni hálfu. Ég er bara niðurbrotinn maður. [Horfir í gaupnir sér]
Voðalega finnst mér alltaf spes þegar fólk er að tala um að hætta hérna, hverjar sem ástæðurnar eru. Allt of dramatískt fyrir minn smekk. Ég hef oft látið mig hverfa þegar mér fer að leiðast, og kíki svo bara aftur við seinna ef mér sýnist svo. Skil ekki að þurfa að tilkynna það (oft með tilheyrandi innleggja- og félagsritaeyðingu).
Mín skoðun... í guðanna bænum ekki míga niðrúr sökum hneykslunar.
PS
Auglýsingarnar hans Hlebba voru drullufyndnar, og sömuleiðis gæti ég trúað að leikritið sé skemmtilegt líka.
Vadim Fedorov, er það einhver ný stafsetning á Vladimir Fuckov? Og er þá þessi Hjörleifur kannski Hlewagastir sjálfur? [Púar pípuna]
Hákon (eða á ég að kalla þig Hrund): Það er alveg óþarfi að koma upp um þetta vel heppnaða markaðssetningarplott okkar!
Þú meinar... nei nei, Ívar og Galdri klikka ekki frekar en fyrri daginn... Reyndar held ég að Skabbalútur sé opinn, man það bara ekki...
Vlad voruð þjer með 16K eða 48K? Hvort hjelduð þér með Duran Duran eða Wham á þessum tíma?
Þú verður þá að taka einhverja af frillunum með þér í staðin, gerðu það bara fyrir mig, ekki kynna hana sem drottningu!
Regína, ég ætlaði miðana þér og Jarma. Nú, ég fer á bara með Skabba, hann var að bjóða sig fram í frilludjobbið hér tveim belgjum fyrir ofan mig.
Forsetaembætti Baggalútíu sendi raunheimaleikara á staðinn til eftirlits með óvinum ríkisins (þeir hafa nefnilega hugsanlega sjeð auglýsingu Ívars). Þetta eftirlit mistókst hinsvegar algjörlega því tónlistin dró að sjer alla athyglina. Næst þegar svona atburður á sjer stað er ljelegri tónlist nauðsyn svo hún dragi ekki að sjer alla þá athygli er frekar ætti að beinast að hugsanlegum óvinum ríkisins.