Ég átti þetta ljúfa lag í handraðanum og hafði oft ætlað að skella því fram en nú er komið að því. Meðfylgjandi er svo textinn sem er all nokkuð flókinn og farið hratt með og því ill skiljanlegur en hér er hann.
Jól
.
Jól
.
Jól
.
Jól
.
Jól
.
Jól!
ef þú heldur ekki jól... þá má þetta svo sem alveg vera Jói... eða Guttormur...
Þetta er nú svei mér hugljúft og seiðandi Íbbi minn! Takk fyrir að ylja okkur svona á jólanótt! [Flissar smá]
Já, en vantar ekki jarðtengingu í eitthvað hjá þér þarna? Þetta suð bendir til þess. Gott lag engu að síður.
Gætirðu samið og spilað Hanukkah-lag? Mætti vera svolítið gyðinglegt.
Það á ekki að vera jarðtenging! Það eiga að vera læti og svoleiðis. En Hannukah lögin eru því miður búin á lager. Reyndu aftur síðar.
Ívar minn... Ertu búinn að vera að hlusta lengi á Forgarð Helvítis?
Vantar bara trommubarning undir.
Gleðileg jól.
Gráni: nei, ég veit af því bandi en hef ekki hlustað á það. Annars þá er ég ekki með trommur og trommuforritið bilaði. Þetta lag er líka undir áhrifum frá fyrstu plötum Suiciadal Tendencies, Stormtroopers of Death(S.O.D), Napalm Death, Cannibal Corpse, Slayer, Toy Dolls og svo mætti lengi telja.
Annars var ég hugsa um hvort ég hefði heyrt þetta áður getur verið að þessu sé stolið af plötunni Bassajól?
Fyndin jólalög eru bönnuð hjer á þessum grafalvarlega miðli sannleikans [Strunsar út af þræðinum og skellir á eftir sjer].
Hafa óvinir ríkisins annars eitthvað verið að fikta í nafni yðar ? [Les nafn fjelagsritsins aftur til öryggis]
PS Gleðileg jól !
Þú getur sjálfur verið bilað bassaforrit.<Strunsar burt frá settinu og tekur kjuðana með.>
Undur ljúfur flutningurinn og þá sérstaklega hve ljúflega þú gælir við bassann, fær mig til að minnast þess fallega og blíða sem jólin standa fyrir. [Vöknar um eyru við endurtekna hlustun]
Það er allt í þessu lagi! Friður í upphafi, svo tekur við æsingur og maður hreinlega sér jólapappírinn tætast út í loftið eins og blindbyl og í hvert skipti sem tilkomumikill söngurinn heyrist sér maður fólkið rífa í sig kræsingar eins og úlfar bráð.
5 stjörnur.
Nei, nei eftir þessa frammistöðu ertu ekki lengur verðugur þess að skarta mynd af mínu helsta "goði" - Sylvian fyrirgef þú oss !
Heróp: Miðað við sköpunargleði Sylvians þá er þetta alveg í takt við það, koma sífellt á óvart. Ég fylgi engum stefnum heldur geri það sem mér sýnist í tónlist... líkt og téður Sylvian.
Frábært lag. Finst samt að það þurfii að mastera þetta aðeins til, þannig að hávaðinn sé í réttum styrk á réttum stöðum.
Þetta verður nú að teljast eitt alljelegasta lag sem nokkurn tímann hefur verið samið fyrr og síðar.
Sammála Ríkisarfanum. Jeg held að þjer sjeuð bilað bassaforrit , líklegast biluð eldri útgáfa af R bassaforritun.......