— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Dagbók - 2/11/07
Ílát úr tré með járngjörðum

Úps

Ég hef undanfarið tekið þátt í leiknum spurt eftir spurninguna og nánast undantekningarlaust skotið inn spurningum um tunnur. Ég hins vegar hef ekki verið mikið að þvælast á forsíðu Gestapó upp á síðkastið og enn síður skoðað hvað hefur verið að gerast á þræðinum. Af þessum orsökum hef ég ekki séð félagsrit Regínu og því síður áttað mig á pirringnum fyrr en í kvöld. Ég lofa að láta af öllum spurningum um tunnur í leiknum og snúa mér að öðrum og jafnvel gáfulegri spurningum þó svo það gæti orðið mér erfitt. Ég bið þá velvirðingar sem hafa átt um sárt að binda vegna tunnuspurninganna.

   (48 af 287)  
2/11/07 02:02

Herbjörn Hafralóns

Ég er líka í tunnubindindi. [Dæsir mæðulega]

2/11/07 02:02

Billi bilaði

Hvaða tunnur?

2/11/07 02:02

Regína

[Bindur um bágtið.]

2/11/07 02:02

Ívar Sívertsen

[kyssir á bágtið]

2/11/07 02:02

Skabbi skrumari

Tunnurnar á planinu?

2/11/07 02:02

Ívar Sívertsen

[Saltar Skabba í tunnu og lokar]

2/11/07 02:02

Wayne Gretzky

Hvað ætlarðu að gera með tunnurnar?

2/11/07 02:02

Skabbi skrumari

Er búið að pækla þær?

2/11/07 02:02

Hexia de Trix

"Ég pækla mínar tunnur - fyrir það víst fæ ég greitt!"

2/11/07 02:02

krossgata

Er þetta þá tunnuþráðurinn?

2/11/07 02:02

Skabbi skrumari

Er þráður í tunnunum eða tunna á þræðinum?

2/11/07 02:02

Billi bilaði

"Hæ tunnu, hæ tunnu, hæ salt, meira salt!"

2/11/07 03:00

Galdrameistarinn

Talaði Stormskerið ekki einhverntíma um að hann ætti sér ílát, í annarri merkingu víst, þó ekki hafi það verið úr timbri með gjörðum?

2/11/07 03:00

Kiddi Finni

Annars, hvað þýðir að pækla? Gaman væri að vita það.

2/11/07 03:00

Billi bilaði

Saltpækill er salt uppleyst í vatni. Einnig getur verið í honum t.d. sykur og saltpétur.
Kjöt og fisk er hægt að geyma í svona pækli, (og þá gjarnan í tunnum).

2/11/07 03:00

Billi bilaði

"Að pækla" er þá að leggja mat í tunnur og setja pækil yfir hvert lag.

2/11/07 03:00

Kiddi Finni

Takk Billi. Sykur gerir fiskinn mjúkan, hann verður svo harður í salti einu. Það vissi ég og nú veit ég meira.

2/11/07 03:01

Jarmi

Menn eru byrjaðir að blanda rósmarín í pækilinn vilji þeir fá hvítari fisk. Oseisei.

2/11/07 03:02

Offari

Eru tunnurnar klárar?

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!