Nú ætla ég að hella mér út í það að gagnrýna bjór (sem reyndar er kallaður blútur á máli innfæddra en verður kallaður bjór til að utanaðkomandi geti notið umfjöllunarinnar).
Um helgina keypti ég mér íslenskan bjór sem ber nafnið Gullfoss. Ég hélt í framhaldinu í partý þar sem ég hóf svo að drekka bjórinn. Hann var ekki kaldur og því var kannski ekki ástæða til að kneyfa hann hratt og stíft. Það gaf mér tækifæri til að dæma bragðið frekar. Það verður að segjast eins og er að bragðið af honum er frekar óspennandi. Þetta er svona bjór sem maður fær sér kannski eftir kvöldmatinn og maður gleymir bragðinu um leið og flaskan klárast. Ég gef honum eingöngu tvær stjörnur. Önnur er vegna þess að ég gæti trúað að það væri gott að drekka hann ískaldan til að slökkva þorsta. Svo er miðinn svolítið smart á honum. Það reyndar vakti mikla kátínu í partýinu það sem stóð aftan á miðanum... Þar kom fram að ekki væru rotvarnarefni eða viðbættur sykur í bjórnum frekar en fossinum sjálfum. Framleiðendur Gullfoss bjórsins verða að gera betur ef þeir ætla að ná markaðnum.
Nei... en sá bjór er víst í framleiðslu hjá sama fyrirtæki... En nei, ég lék ekki rútubílstjóra þegar leið á.
Ég kem að Viking síðar. Þetta er ákveðin aðferð hjá mér til að geta fengið mér mjög reglulega bjór án þess að Hexia fari að kvarta. Ég er jú að sinna fræðistörfum.
rosalega ertu unglegur Íbbí það eru að minnsta kosti tuttugu ár síðan ég var beðinn um passa í ríkinu.
Gullfoss, verður ekki að markaðssetja hann sem Golden shower í útlöndum?
Gullfoss ó gullfoss
þig glaður teyga
segi svona... hef ekki smakkað... góð umfjöllun og umræðan ekki verri... Skál
[grípur um kvið sér og leggst í fósturstellingu á jörðina, emjandi af hlátri yfir Günther og Ívari]
Það merkilega er að bjórinn er raunverulega bruggaður úr vatni Hvítár. Pælið í því...
[Hlær óskaplega að Günther ofl.]
Ég hélt þetta væri rit um nýjasta gæludýrið á heimilinu.
[Hermir eftir Galdra]
Hey! Út með helvítis bjórinn áður en hann nagar staðinn niður í tannstöngla!
[Fer að hlæja]
[Skrifar hjá sér að smakka ekki Gullfossarbjórinn]
Já, vissirðu ekki að feministar komust yfir Gullfoss og ákváðu að nafnið Gullfoss væri kvenkyns? Beygist eins og Guðlaug:
Gullfoss
Gullfossu
Gullfossu
Gullfossar
Já, Ívar, ég bragðaði einmitt.... eh, vinur minn, sem ég þekki, bragðaði einmitt á þessu á öli og þótti lítið til koma. Nú vaða menn á markað með hin og þessi íslenzk vörumerki á ölflöskum og ég verð að segja að þetta virðist allt saman vera óttalegt sull... sko finnst vini mínum, sem ég þekki... og er þá sama hvort ölið heitir Kaldi, Skjálfti, Gullfoss eða Grillo.
Sjálfum finnst mér nú... ég meina vini mínum, sem ég þekki, Egils Premium bera af íslenzku öli þó Jökull hafi einnig komið skemmtilega á óvart... fannst vini mínum, sem ég þekki, sko.
Þú átt góðan vin Sundi minn. Þarna kemur berlega í ljós hvað vináttan er fallegt fyrirbæri.
Ég hef nú ekki fengið tækifæri til að bragða þennan bjór.. En miðað við framleiðandann þá kemur á óvart að hann skuli ekki slá í gegn.. En ætli ég verði ekki bara að prófa líka, það hafa nú ekki allir sömu skoðun..