Þegar kreppan sverfir að og sultarólin þrengist þá er gríðarlega mikilvægt að standa saman og sýna hvert öðru hlýju og umhyggju og njóta samveru.
Hvers vegna þessi fyrirsögn og hvers vegna þessi formáli? Jú það er virkilega kreppa. Það sem vakir fyrir mér er einfaldlega það að þann 15. nóvember ætlum við að halda árshátíð og skemmta okkur saman, njóta samveru og reyna að gera hið besta úr ástandinu. Það verður ýmislegt áhugavert á seyði og ég á von á því að hlátrasköllin eigi eftir að berast langt út fyrir sveitarfélagið. Hvernig sem ástandið verður í þjóðfélaginu þá er eitt sem ekki fer og það er Gestapó. Annað sem ekki breytist er það að við ætlum að halda árshátíð til að skemmta okkur. Þeir sem ekki hafa skráð sig ættu að gera það nú þegar því ég á von á bráðskemmtilegri árshátíð... og ekki skemmir að hljómsveitin er gríðarlega góð.
Hafi einhverntíma verið ástæða til að halda skemmtilega árshátíð er það einmitt við svona aðstæður.
Skál !
Ég ætlaði aldrei að þora að lesa þetta, svo er þetta bara æðislegt félagsrit! [Ljómar upp]
"Hvernig sem ástandið verður í þjóðfélaginu þá er eitt sem ekki fer og það er Gestapó."
Jú, það má vera, nema ef við verðum svo djúpt sokkin í kreppuna að við breytumst í vergangsrottur sem eigum ekki í okkur, á né undir, þá verður líklegast lítið um internettengingar og þess háttar.
Já, haldið bara þessa árshátíð fyrir mér. Þetta verður hvort eð er ekkert skemmtilegt án mín!
[Lext í gólfið og lemur í það grenjandi]