— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Gagnrýni - 6/12/07
Galdri bjargar heiðrinum

Galdri er góður kall!

Á dögunum skrapp Galdri á skerið og skildi bílinn sinn eftir. Hann fól mér varðveislu hans. Um daginn þegar ég skrapp í ferð til útlanda þá var minn bíll eitthvað efins um að fara þannig að bíllinn hans Galdra var nýttur til þess að skrönglast á flugvöllinn.

Takk Galdri fyrir að bjarga heiðrinum.

   (64 af 287)  
6/12/07 13:01

Galdrameistarinn

Njóttu vel félagi.
Vona bara að hann reynist þér vel sá gamli.

6/12/07 13:01

Einn gamall en nettur

Galdri skildi líka tennurnar sínar eftir hjá mér. Þær voru vel nýttar með sunnudagssteikinni!

Takk fyrir mig Galdri minn.

6/12/07 13:02

hlewagastiR

Hann skildi tánaglalakkið eftir hjá mér. Ég hef haft af því ómetanlegt gagn. (Þennan orðabelg getur enginn skilið nema Galdri - en það gerir ekkert til.)

6/12/07 13:02

Jóakim Aðalönd

Galdri er magnaður fýr! Hann skildi kynorkuna hér hjá mér og ég veit bara ekkert hvað ég á við hana að gera...

6/12/07 13:02

Vladimir Fuckov

Ha ? Tókst honum að skilja kynorkuna ? [Klórar sjer í höfðinu]

6/12/07 14:00

Jóakim Aðalönd

Já, þetta eru íslenzkar kynorkurannsóknir...

6/12/07 14:00

Ívar Sívertsen

Eruð þið að smíða kynorkusprengju?

6/12/07 14:00

Galdrameistarinn

Helvítis kjaftæði Jóki.
Kynorkan er öll hjá mér í Flens og ég sé hreinlega ekki fram úr verkefnunum.

6/12/07 14:00

Einn gamall en nettur

En elsku Galdri minn þér gleymduð þvílíku magni af þessum VIAGRA töflum heima hjá dóttur minnni?

6/12/07 14:00

Jóakim Aðalönd

Galdri minn, þú skildir eftir a.m.k. 1/3 hluta af kynorkunni og þetta er í rannsókn...

6/12/07 14:00

Jóakim Aðalönd

Ég veit ekkert hvað ég á við hana að gera...

6/12/07 14:00

Galdrameistarinn

'Getur ekki verið.
Var að tékka og hún er 100% hérna.

6/12/07 14:00

Ívar Sívertsen

Það er rangt Galdri. Fjórðungur kynorkunnar varð eftir í öskubakkanum á bílnum, sem hér eftir verður kallaður Graði Rauður (Gamli Rauður fyrir börn og teprur)

6/12/07 15:00

Jóakim Aðalönd

Það er samt eitthvað hérna um kynorku skv. rannsóknum. Sennilega hefur hún aukizt hjá þér undanfarið...

6/12/07 15:01

Ívar Sívertsen

Hvernig má það þá vera að við séum handhafar 55% kynorku Galdra og hann 100%? Er hann sá fyrsti í heiminum til að vera með 155% kynorku?

6/12/07 15:01

Jóakim Aðalönd

Já. Greinilega.

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!