Reynt að endurheimta þann hluta sem náðist ekki í haust af keisaradæminu
Við Hexa de Trix dulbjuggum okkur sem meðlimir kórs og fórum með þeim kór til Vínar. Það kom okkur verulega á óvart að með í för eru Línbergur Leiðólfsson og Næturdrottningin
Við höfum verið í vettvangsrannsóknum í allan dag og munum skila niðurstöðum við heimkomu. Tilgangurinn er að endurheimta keisaradæmi Herbjarnar, sameina aust-ungverska keisaradæmið og afhenda það yfirvöldum.
Meira síðar... ef við lifum það af!
Þetta er nú ekki mjög leynilegt, ég las allt um þetta hér á Gestapó.
Hvað ef
Óvinir ríkisins gætu verið að fylgjast með hérna.
Það hefur alltaf verið vitað og því eigi um húmor eða aulahúmor að ræða (enda húmor harðbannaður hjer á þessum miðli sannleikans).
Þið hafið væntanlega skoðað alla sögufræga kjallara austurríkshrepps og listasöfn með verkum frægasta sonar fyrrnefnds hrepps, sem raunar vildi sameina hann þýskalanshreppi á sínum tíma, ásamt flestum hreppum heimsins minnir mig. Svo sannarlega brautryðjandi í sameiningu sveitarfélaga á sínum tíma. Var ekki svo? Yfir til þín ívar spæjó.
Heyrðu nú mig. Ég var í leyniferð í Eystrihreppi á sunnudaginn síðastliðinn, en þurfti að forða mér skyndilega aftur yfir til Þjóðlendnanna. Vonandi gengur ykkur betur. Þetta er hættustaður.
Sem starfandi keisari kann ég ykkur hjónum bestu þakkir og óska ykkur velfarnaðar í þessari hættuför.
Benzínið er samt ódýrt þar eystra, ódýrara en í Þýzkalandi, sem er ódýara en í Danmörku. Allstaðar er það þó dýrara en á Íslandi, þar sem það er með ódýrasta móti.
Merkileg mótmæli, loksins þegar eitthvað er ódýrt heima, þá æsist lýðurinn: ,,Þetta gengur ekki, við eigum að vera dýrust í heimi!"
Þú verður að passa Næturdrottninguna mína Ívar. Ef óvinir ríkissins ná henni þá verð ég að leggja Austurrísku alpana í rúst með handafli til að sefa sorg mína.
Prófið ,,Gösser"-bjór fyrir mig. Hann er góður! Austurríkismenn segja: Gut, besser, Gösser.
Hvernig vitum við að þetta er ekki óvinur ríkisins að hylma yfir því að hann sé búinn að ná HexÍvari og sé að fullvissa sig um að enginn komist að því? Ég ætla að hafa varann á til öryggis.
Nú hefur okkur tekist að sölsa undir okkur hið forna keisaradæmi. Heimferðin verður strembin en þegar við fjórmenningarnir nálgumst heimaslóðir þá berum við saman bækur okkar og við heimkomu birti ég skýrsluna.
Gösser ist besser als wasser und messer. Gut, besser Gösser eru orð að $önnu!
Oj, bjór. Blúturinn er betri.
Annars var þetta alveg hreint skínandi. Ég held að óvini ríkisins hafi ekkert grunað þegar við kipptum undan þeim hinu forna keisaradæmi, eins og töframaður kippir dúk af drekkhlöðnu kaffiborði.