Raunheimaútgáfa Hexiu de Trix á afmæli í dag. Hún sér illa en heyrir vel og er þokkalega ern miðað við aldur og fyrri störf. Til hamingju Hexia mín.
<Reynir að syngja afmælissönginn svo hátt að hann heyrist alla leið frá Tasmaníu...>
Óska Hexíu innilega til hamingju með daginn.
Óska ívari og dætrunum til hamingju með þá gömlu.
Til hamingju með daginn.
Þetta er vonandi ekki einn af þessum afmælisdögum sem að maður kvíðir fyrir frá æsku.
Annars er ég búinn að komast að því að þeir eru hvergi nærri eins slæmir og maður hefur ímyndað sér.
Það kemur hinsvegar stundum á óvart hvaða dagar leggjast þungt á mann þegar þeir allt í einu renna upp.
Hexía.
Ég vil óska þér innilega til hamingju með þennan stóráfanga í lífi þínu og vona að elliárin verði þér mild og Ívar hegði sér sómasamlega.
[Heyrir óminn af afmælissöng Billa og Regínu og tekur undir, frekar falskt.]
Til hamingju Hex! [Gefur Hexíu eftirlíkingu af Happapeningnum í afmælisgjöf]
Ertu ekki 216 ára í dag?
Til hamingju með daginn, elsku Hexía. Þú færð knús frá mér annan miðvikudag. Já og svo verður örugglega hægt að skála eitthvað í Vín eftir tvær vikur. (Ljómar upp)
Já og Ívar, til hamingju með kellu..
Takk öllsömul, þið eruð æði.
En hann Ívar átti ekkert með að kjafta þessu svona út um allt. Auk þess minnti þetta mig bara á að ég þyrfti að fá mér nýja raunheimaleikkonu, þessi núverandi leikkona er greinilega orðin of gömul í hlutverkið.
Íbbi minn, það er nú löngu kominn tími á að þú finnir þér nýjan leikara í hlutverkið. Þessi gamli er orðinn dáldið lúinn... [Glottir]
Til hamingju Hexia mín. Þér tekst vonandi að láta kallinn þjóna þér í tilefni dagsins.
Til hamingju. Reyndar var frúin búin að senda eina kveðju en góð kveðja er aldrei of oft send. [Ljómar upp]