Enn er Hexia í rannsóknarferð meðal óvina ríkisins
Í gær ætlaði ég að gefa afkvæmunum að éta. Ég hafði keypt eitthvað helvítis jukk í rottuholubúiðinni hér rétt hjá og tók fram pönnu. Ég setti smá díselolíu á pönnuna þar sem menn tala alltaf um að steikja upp úr olíu og skellti síðan jukkinu í það. Mér var sagt að láta þetta malla. Ég stillti gæðatakkann á eldavélinni á 1 og taldi mig nú hafa stillt á fyrsta flokks eldamennsku. Ég beið lengi og ekkert gerðist á pönnunni en ég var farinn að veita því athygli að plasthillan sem hangir fyrir ofan eldavélina var farin að beyglast eitthvað. Ég prófaði annan gæðatakka og núllaði hinn. Eftir all langa stund fór eitthvað að gerast, alla vega fannst mér einhver velgja komast í díselilnn. Ég smakkaði á þessu en mikið andskoti smakkast díselolía illa, ég er eiginlega mest hissa að fólk skuli nota þetta. Átti ég kannski að nota smurolíu? Eða steinolíu? Hvað um það. Ég náði í gaffal og fór að pota í jukkið sem maraði í hálfu kafi í díselnum og það tók að losna í sundur. Mér var hætt að standa á sama því ég hélt ég væri að búa til einhvers konar steikarhleif. Ég leit á umbúðirnar og á þeim stóð KJÖTFARS. Ég reyndi að moka þessu saman með gafflinum og hnoða í einhvers konar haug en það hafði ekkert að segja. Þetta var svona eins og kúkar á floti í klósetti og lyktin eins og á illa reknu bifvélaverkstæði. Ég hugsaði með mér að það væri kannski ágætt að flambera draslið með smá konnara og sótti fleyginn. Gumsið var ekki meira en hlandvolgt á pönnunni þrátt fyrir fyrstu gæðastillingu. Alla vega þá skvetti ég slurk af konna í díselinn og sótti kveikjara. Eitthvað hef ég líklega sett of mikið af konnanum því nú sit ég hér eins og hálfsköllóttur maður án augabrúna. Eldhúsið sem var hvítt er orðið svart að hluta og gumsið á pönnunni er nú kolamolar í ruslatunnunni. Kvöldmaturinn í gær samanstóð af hálfmygluðu brauði og útrunnu hangikjöti. Með því var drukkið kaffi og dæturnar sofnuðu um þrjú í nótt!
p.s. HEXIA!!! KLÓSETTPAPPÍRINN ER BÚINN OG MOGGINN ER AÐ KLÁRAST LÍKA, HVAÐ Á ÉG AÐ GERA?
Kemur ekki nýtt fréttablað á hverjum degi?
Hvenær ætlarðu að bjóða mér í mat, mér sýnist þú vera abbragðskokkur.
Hexía ætti að bregða sér oftar frá... dæturnar eru amk ekki dánar úr matareitrun ennþá... en ég þakka samt fyrir að þær fái að borða í skólanum!
Þú stendur þig bara vel Ívar minn.
Ég átti von á mun verra ástandi.
Heng in ðer böddí !
Ívar mer hefur alltaf fundist það þjóðráð að panta pizzu þegar konan mín breggður sér í bæinn. Ég mæli með því að þú farir að mínum ráðum því það má alltaf nota umbúðirnar til að skeina sér.
Já minn kæri, ég veit svo sannarlega hvað þú ert að ganga í gegnum. Ég bjó eitt sinn með manni sem einmitt rauk til útlanda og skildi mig eftir með öll heimilistækin og heimilisverkin án karlmanns til að sjá um þau. Ég flutti á hótel daginn eftir og var þar þar til maðurinn sneri heim. Úff þetta var hræðilegasti sólarhringur lífs míns. Mæli með Hótel Borg.
Þetta virðist ganga þolanlega miðað við það sem búast mátti við, þó kannski ívið verr en fram kom í síðasta fjelagsriti [Heldur niðri í sjer hlátrinum en gengur það illa].
Vjer fullvissum yður þó um að barátta gegn óvinum ríkisins er þess virði að verða fyrir 'lítilsháttar' óþægindum [Virðir fyrir sjer rústirnar af rannsóknastofu C á sviði gjöreyðingarvopna].
Ég er alla vega búinn að finna upp nýtt gjöreyðingavopn... KJÖTFARS Í DÍSELOLÍU!
Það eru bara nokkrir dagar efir. Þú ert á hvínandi flugi, láttu vaða í aðra stórfenglega 4ra rétta máltíð og núna á ekki að nota neinn konnara... bara pjúra vodka yfir allt heila klabbið og ég skal meira að segja lána þér eldvörpuna mína!
Súrmjólk, cheerios, kornflex, mjólk. Ekki annars gleyma Konna í gjöreyðingarvopnauppskriftinni.
[Staulast út og heldur um magann af hlá...]
Nei... ég held að konninn sé fínn að drekka á meðan verið er að malla kjötfars í dísel.
Hvernig er það, nú er ég orðin mjög forvitin um þessa eldamennsku eftir lesturinn, verður ekki boðið upp á kjötfars í dísel á Trökkeradænernum?!
ja getur kellingin ekki bara sjálfri sér um kennt? aldrei hefði mín þorað eitthvað svona áður en börnin voru farin að elda sjálf.
Kannski er eldavélin biluð en margar merkar uppfinningar hafa orðið til óvart eins og þetta nýjasta gjöreyðingavopn.
Til hamingju.
[Rennur á hljóðið]
Nefndi einhver gjöreyðingarvopn ? [Ljómar upp og fer fram á nákvæma skýrslu frá Ívari um tjón af völdum þessa meinta gjöreyðingarvopns]