Það hefur hvisast út sá orðrómur að ritstjórn - sem ekki hefur látið sjá sig á Gestapó í langan tíma - ætli að loka hér 1. júní. er það virkilega nauðsyn?
Mér líst svona mátulega á þetta núna þar sem svo margir treysta á félagsskap Gestapóa yfir sumarið. Eins mánaðar sumarlokun hefur oftar en ekki orðið að þriggja mánaða lokun og því fólk orðið all verulega pirrað við opnun. Í haust sem leið var byrjað á upphafsreit svo að segja þar sem öll innlegg voru horfin. Félagsritin héldu sér. Mér finnst alveg þess virði að ítreka það að fólk taki afrit af þeim skrifum sem það hefur látið frá sér ef þau eru þess virði að eiga þau eins og til dæmis kveðskapur og önnur spakmæli.
Ég vona að Enter elskulegur og hinir sykurpúðarnir í ritstjórn geti séð sér fært að hafa sumarlokunina bara einn jarðarmánuð ef af verður.
Ég vona að við eigum eftir að eigast við aftur eftir lokun... ef af verður!!!
LIFI SANNLEIKURINN!
Vjer tökum undir þetta allt. Öfugt við það sem var í árdaga Gestapósins í u.þ.b. núverandi mynd erum vjer reyndar núna fylgjandi einhverri sumarlokun en þrír mánuðir eins og í fyrra er alltof langt. U.þ.b. 6 vikur teljum vjer nokkuð hæfilegt.
Jafnframt bendum vjer á að einhverjir eru eflaust reiðubúnir að aðstoða við rekstur Gestapósins ef á þarf að halda.
Skál !
<Hrökklast afturábak og hrasar við>
Ívar ? Vinna ?
<Grípur um kvið sér... og allt það>
Lúturinn bráðum leggst í frí,
lendir þá gleðin fyrir bý?
Fátt virðist gott að gera í því
grátum horfinn lútinn.
Má eitthvað betra en baggalút
bjástra við þá hann dettur út?
Eitt veit ég duga, drykkju af stút,
drífum oss í kútinn.
daginn sem aldrei kom þar sem tímavjelin var notuð til að hoppa yfir hann. Munið þjer ekki eftir því?