Skabbi nokkur Skrumari orti okkur ljóð til flutnings á árshátíðinni. Ég klúðraði saman einhverrju gutli sem var síðan gargað við þennan mikla kveðskap. Smá breytingar þurfti að gera á kveðskapnum svo hann félli að óhljóðunum og var ég búinn að kanna viðhorf Skabba til þeirra breytinga en því miður ekki fengið svar. Því birti ég nú téðan kveðskap með þeim breytingum sem ég gerði. Njótið heil. (p.s. farið verður í það sem fyrst að hljóðrita lagið og það birt hér á gestapó þegar það er tilbúið)
Til forna voru félagar að jarma
Fannskers-Númi, Berti, Myglar, Spesi,
Kaktuz og Enter kaffið drukku varma,
kasúldinn þeim þótti alnets pési.
Vissu þeir að varla skyldi harma,
vöntun kjarks og skorts’á sannleiksfési,
sáu þeir í fjarska bjartan bjarma,
Baggalútur skyldi sjást á nesi.
Þeir sögðu „karlar núna kaffið sötrum,
í karpi alnetsins vart við lengur nötrum“
Sýnum fólki sannleika,
sómaskjöldinn Baggalút,
Gestapóa geðveika,
glösin bláu, drykkin blút,
fyllibyttu fárveika,
flösku drekkum - Skál af stút.
fyllibyttu fárveikaaaaaaaaaaaaaaaaaaa,
flösku drekkum - Skál af stút.
Reis hann hár úr rústum alnets stillu,
rismikill og fögnuður var mikill,
falsmiðla og aðra fréttakvillu,
flettu ofanaf og kominn lykill
Baggalútur berst við málsins villu,
bjartir tímar, fannst loks sannleiks stikill,
þeir glasið lögð’á Gestapóa syllu,
gerðist stór og flókinn þráðahnykill.
Við skoðum þar félagsrit og sötrum
í fegurð og gleði kannske dáldið nötrum.
Sýnum fólki sannleika,
sómaskjöldinn Baggalút,
Gestapóa geðveika,
glösin bláu, drykkin blút,
fyllibyttu fárveika,
flösku drekkum - Skál af stút.
fyllibyttu fárveikaaaaaaaaaaaaaaaaaaa,
flösku drekkum - Skál af stút.
Færeyinga finnur Dúdd’á hlaupum,
frá Vlad og Hakuchi kóbaltsvélum
Vímusi og Vamban oft með staupum,
varla rendur Tigru burtu stelum.
Ívari með oft í glettni skaupum,
Offara þá viðbóts-sjálfin felum,
með Útvarpstjóra yfir lombert raupum,
Upprifin finnst oft í vísnahvelum.
Á laumuþræði Ákvíti sötrum,
í eymd og þynnku varla lengur nötrum.
Sýnum fólki sannleika,
sómaskjöldinn Baggalút,
Gestapóa geðveika,
glösin bláu, drykkin blút,
fyllibyttu fárveika,
flösku drekkum - Skál af stút.
fyllibyttu fárveikaaaaaaaaaaaaaaaaaaa,
flösku drekkum - Skál af stút.
Þarfagreinir greinir Önnu vanda,
Galdri hellir blút, við Hvæsa skálar,
Sundlaugur á sundi meðal Anda
sést oft B(é).Ewing í spámannsmálum
Hexía vill hellings kakó blanda
Húmba með og Tinu bolla kálum
Heiðglyrnir og Herbjörn keikir standa
hlewagastiR blandast mörgum sálum.
Á Kaffi Blút við kakó eflaust sötrum.
í kulda og þynnku ei lengur nötrum,
Sýnum fólki sannleika,
sómaskjöldinn Baggalút,
Gestapóa geðveika,
glösin bláu, drykkin blút,
fyllibyttu fárveika,
flösku drekkum - Skál af stút.
fyllibyttu fárveikaaaaaaaaaaaaaaaaaaa,
flösku drekkum - Skál af stút.
Þetta verður að vera komið fyrir jólagleðina, svo allir nái að æfa sig.
Þetta er fínasti bálkur. Eini gallinn er að hvergi er minnst á mig. [Brestur í óstöðvandi grát]
Þið sem ekki ertuð nefnd hér verðið kannski nefnd í næsta lagi... Verið bara þæg og góð við mig og þá er aldrei að vita.
Ég var nefnd og var í nefnd, víííí!
(Og Jóakim, þú átt auðvitað þinn part í þessari línu: „Sundlaugur á sundi meðal Anda.”)
[Stendur einn úti í horni með Sloppa merkta 'BaggaPóMeistarar']
Jég veit að þetta er svolítið seint, en hjér eru múturnar sem þið vilduð, svo mjér yrði troðið í textann.
hmm... þú færð að vera með í næsta lagi
[sér fyrir sér framkvæmd í líkingu við Ólafsvöku í Færeyjum]
Við stelum bara Írskum slagara næst og saumum við hann einhvern hroðalegan þar sem við saumum illilega að ykkur.
[Tekur fram nokkra geisladiska með Írskri þjóðlagatónlist og fer að hlusta]
Mér líst stórvel á þessa góðu vísu, sérstaklega í ljósi þess að ég er fyrsti almenni gestapóinn sem er nefndur á nafn!
En það kemur svossem ekkert á óvart.
jah... það er víst ekki lengur minn kæri... þú heitir ekki lengur dúddi...
Jújú, ég get alltaf verið Dúddi í óformlegum góðra vina hópi. Og Skabbi er vinur minn!
Hvað segirðu, varstu að hnoða bumbuna á þér Galdri?
[Breztur í óstöðvandi hlátur]
Hey, það var ekkert minnst á mig... fjandans mismunun er þetta alltaf hreint...
Skál
Skabbi hlýtur að semja annað erindi fyrst hann sjálfur er ekki einu sinni nefndur í eigin kveðskap.
skál fyrir laginu Skabbi, þú hefðir átt að sjá tilburðina við að flytja það. [Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og emjar af hlátri]
Tek undir með Búbbanum, flutningur lags og texta var til mikilar fyrirmyndar og alveg hættulega fyndinn.
[roðnar niður í rassgat] takk.. ég var svo stressaður þegar ég var að flytja þetta að ég hélt að enginn hefði skemmt sér...
Þetta var mjög skemmtilegt og flutningurinn fínn. Hafi hljómsveitin verið stressuð sást það eigi.