Nú finnst mér pólitískir kverúlantar farnir að keyra um þverbak.
Á vefsetrinu www.mbl.is sá ég frétt um það að einhver kvensnift vill að í gangbrautahluta umferðarljósa verði körlum skipt út fyrir konur. Sem sagt, græni kallinn verður græna kellingin. Þetta þykir mér vera óþarfa kverúlantaháttur! hver segir að þetta séu í raun karlar? Geta þetta ekki verið buxnaklæddar konur? Eða hreinlega kynlausar verur? Hvað ætli svona kverúlantabreyting komi til með að kosta? Væri ekki nær að eyða peningunum í eitthvað þarfara eins og að efla menntakerfið eða að sjá til þess að sjúkrastofnanir fái fjármagn? Þetta er alger della ef þíð spyrjið mig!
Mér finnst frekar að það eigi að skifta út rauða karlinum fyrir rauða konu.
Þannig væri hægt að tvinna saman jafnrétti, umferðaröryggi og baráttu gegn nauðgunum.
Sammála - þetta er of langt gengið. Það er nógu margt MIKILVÆGT sem vantar upp á í réttindum kvenna þó að ekki sé verið að eltast við svona tittlingaskít. En ég reyndar er búin að standa við sömu götuna í 20 ár að bíða eftir grænu konunni...
Sammála, ég er jafnréttissinnaður, en þetta fannst mér fáviska á háu stigi... á karlinn (kerlingin) þá að fara í kjól, hvað finnst fólki um það eða láta hana vera með stór brjóst? Furðulegt...
Sú kvennsnift sem fór með þetta mál svona langt á í raun ekkert erindi í stjórnmál.
Það er ekki verið að berjast fyrir raunverulegu jafnrétti með svona endembis fábjánahætti og rugli meðan mál eins og launamunur kynjana vegur þúsund sinnum þyngra.
Ahahahaha.
Þetta er nú það vitlausasta sem ég hef heyrt lengi.
Ég held ég hafi margt þarfara við skattpeningana mína að gera en þetta!
Svona kerlingar setja svart strik í kvenréttindabaráttu.
Já mér hefur oft fundist femenistar ganga langt hér og þar, en þetta er út í hött!
(Enda reikna ég sterklega með því að all flestum femenistum finnist það líka)
Vjer heyrðum þessa frjett í útvarpinu í morgun - þetta er svo fáránlegt að vjer vorum nokkurn tíma að átta oss á um hvað málið snerist (enda nývaknaðir) og að eigi var um e.k. brandara (og það nokkuð fyndinn) að ræða. Þeim peningum er færu í þetta er betur varið í eitthvað annað - ef það á að vera eitthvað tengt jafnrjetti er mjög auðvelt að finna eitthvað betra en þetta.
Þetta er góð tillaga hjá konunni. Hlutgervingu karla í staðalímynd þessa græna, svipbrigðalausa götuvita-fávita VERÐUR að linna.
Hafa þetta bara eins og í Ameríkuhreppi.
Grænt GANGA!
Rautt STOPP!
Þá þarf ekkert að hafa fyrir svona rökleysuræðum.
Þetta toppar næstum því tillöguna um sérstaka snyrtingu fyrir kynskiptinga. Var það ekki á Ítalíu?
Ég ætti kannski að krefjast þess að hér yrðu myndir af tígrisdýrum á hverjum götuljósum!
Skil nú ekki alveg þessa tillögu.
Hvernig verður græna konan öðruvísi en græni karlinn? Meira máluð í framan og í pilsi?
Er tillagan þá ekki frekar að ýta undir staðalmyndir en eyða þeim?
Eins og það sé nú þetta sem jafnréttið snýst um!!!
Ég lifði á Makkdónalds í þrjú ár og mér hefur sjaldan liðið betur en einmitt þá.
Ég hef áhyggjur af því að við fáum ekki rauða konu og eins þykir mér athugandi að sleppa konum og körlum til skiptis yfir göturnar. Þannig að græna konan þýði gakk fyrir konur og græni karlinn gakk fyrir karlmenn.
Geri aðrir betur, ég er ennþá að jafna mig á þessu. Nei, ég er barasta rogginn.
Ég lifði á Makkdónalds í þrjú ár og mér hefur sjaldan liðið betur en einmitt þá.
Ég segi bara eins og Mikki refur... Þetta er það mesta bull sem ég hef nokkurntíma heyrt!! Er þetta Kolbrún Halldórsdóttir eða einhver önnur gribba??
Þetta var lagt til í mannréttindanefnd.
Þess vegna flokkast rauð ljós og konur undir mannréttindi.
Ég vil fá tjéllingu á hjólastólamerkið, ég meina... fatlaðar konur þurfa líka bílastæði.
Ég kann ekki við að setja inn annað félagsrit um þetta málefni, svo ég læt þetta flakka hérna.
Frú Bryndís Ísfeld, fulltrúi Samfylkingarinnar.
Má ég vinsamlegast biðja þig um að finna annan starfsvettvang, helst sem vitavörður eða álíka, þar sem þú getur ekki móðgað annað fólk með hreinni heimsku.
Þessi tillaga þín um að skipta út "græna karlinum" fyrir "grænu konuna" nær ekki nokkurri átt. Heldurðu að útsvar Reykvíkinga geti ekki farið í eitthvað þarfara en þetta? Af hverju ekki græna samkynhneigða, eða græna fatlaða? Hvað næst? Grænir lesblindir? Ekki má móðga þá.
Ég á bágt með að trúa að það séu ekki brýnari mál í jafnréttisbaráttunni en þetta. Ef það er ekki, þá er úti um minn stuðning í þeirri baráttu.
Já! Ívar. Kerlingin í umferðarljósumum er Þuríður formaður frá Stokkseyri. Og engin önnur. - Og það fer henni ekkert að klæðast prjónlesi fyrir eitthvert tildur í eihverjum kerlingum sem ekki hafa migið í saltan sæ.
Setjum bara upp stærri ljós! Þá er hægt að koma fyrir táknum fyrir all litróf lífsins! Konur, karlar, börn á ýmsum aldri, fólk í hjólastólum, fólk með annarskonar fötlun. Svo má ekki gleyma öllum kynþáttum; svartar, gular og hvítar táknmyndir. Þa er náttúrulega ekkert vit í því að allir þessir hjólastólakallarséu hvítir! Og hvað með dýrin?
Mér þykir þetta fyndið og sniðugt hjá henni og mér þykir enn fyndnara hvað fólk lætur þetta fara í taugarnar á sér.
Passaðu að hafa ekki orðin "karl" eða "maður" í því einhversstaðar, spamfilterinn hennar er mjög sennilega sérkennilega stilltur
Svo sagði mamma mér nú þegar ég var strákur að það væri ekki fallegt að kalla konur kellingar.... en þessi beygla veit það sennilegast ekki.