Mikil gleði var í geimi einu sem ég fór í í gærkveldi. Þar var margt um manninn.
Ég hitti í þessu partýi þá Z. Natan Ó. Jónatanz, Enter, Spesa og vafalaust marga fleiri Gestapóa þó ég viti ekkert um það. En það kom upp svolítið súrrealískt atriði sem verður til þess að þetta partý verður munað um aldur og ævi. Ég og Hexia, sem jú var þarna líka, höfðum nýlokið við að skála við Z.N.Ó.J. í Hvítrússa og ég gekk síðan inn ákveðinn gang með rjómafernu í hendinni og þegar ég gekk inn í eitt herbergið kváðu við hlátrarsköll all mikil. Þá var Megas nýgenginn framhjá þegar ég birtist með rjóma. Það var vissulega ástæða til að athuga hvort menn hefðu verið að neyta einhvers annars en bara söngolíu! Megas og maður með rjóma... alger della náttúrulega. Síðan var skroppið í næsta hús þar sem búið var að stilla upp hljóðfærum og hófst þá mikil tónleikadagskrá sem ég því miður þurfti að missa af að mestu. En ég náði þó einhverju. Alger dýrðarskemmtun og ég vildi að ég hefði getað verið lengur og hlustað á Z og félaga halda uppi fjörinu sem og ýmsa góða á borð við Baggalút og Megas troða upp.
Árshátíðin var ekki rædd og því mætir Megas ekki þar nema annað komi í ljós.
Jah, nema náttúrlega að Megas sé Gestapói. Kannski er Megas Glúmur, nema þá að Glúmur sé Megas. [Starir þegjandi út í loftið]
Er það rjett skilið hjá oss að Megas sje Ívar ? [Hrökklast afturábak og hrasar við]
Nei, það vantaði alltof marga Gestapóa til þess. Reyndar vantaði alltof marga úr ritstjórn, ef út í það er farið.
Varst þú nokkuð þarna Herbjörn?
Nei, nei, ég var ekki þarna þótt ég hefði feginn viljað vera á staðnum.
Eða kannski á árshátíð Samtaka árshátíðaandstæðinga úr því að ritstjórnin var þarna ?
Vá...mér var bara boðið í leiðindapartí með einhverju snobbpakki - sem ég skrópaði reyndar í . En hjá hverjum þarf maður annars að sofa til að komast í svona fjör?
Ég sef nú bara hjá Ívari mínum, eins og ég hef gert undanfarinn áratug eða svo... [Starir þegjandi út í loftið]
Jah, ekki nema Megas búi yfir tímavél og geti þar af leiðandi verið á mörgum stöðum í einu?
Vjer förum hjer með formlega fram á að allir með vitneskju um tiltekið mál hafi eigi hátt um það í bili því upplýsingar um það gætu reynst gagnlegar fyrir óvini baggalútíska heimsveldisins.
Varðandi tímavjelar hefur ávallt verið mikilvægast að geta notað þær til að athuga hvernig næsta árshátíð muni heppnast. En í þetta sinn hefur oss eigi enn tekist að finna neina árshátíð í framtíðinni [Brestur í óstöðvandi grát].
gagnrýni á gott teiti... ef vel er að gáð þá er þetta gagnrýni. Það hefur aldrei verið skilgreint hvað menn eigi að gagnrýna þannig að ég lét vaða.
Hvað er Skabbi þá að væla ég sem ætlaði að fara eyða öllum mínum tilgangslausu félagsritum
Nei nei ég tók nú þetta ekki of alvarlega, ég reyni oft að vekja fá við brögð við mínum félagsritum það kalla ég tilgang. Gagnrýnin hér hjá Ívari virðst vera áhugaverð þá er hún valla tilgangslaus.
Eins og Tvíhöfði sagði hér um árið: Öll erum við Megas. Það hlýtur þó að stangast á við það að við erum öll Glúmur. Hvað finnst ykkur?
Árshátíðin var ekki rædd og því mætir Megas ekki þar nema annað komi í ljós.
http://www.baggalutur.is/frettir.php?id=1971&d=12&m=9&y=2005& ;start=0
(Sjá athugasemd við rit hlebba)