Hjálpi mér... ég fékk í bakið. Fyrirtækið sem ég vinn hjá gaf mér skýr skilaboð!
Það sem málið snýst um er að ég fékk fyrir 4 árum útbungun á brjóski í hrygg sem varð til þess að ég lagðist flatur 2 vikum fyrir brúðkaup mitt. Sjúkraþjálfara einum tókst að gera kraftaverk á mér og ég gekk upp að altarinu óstuddur og ekki haltrandi.
Fyrir viku síðan fékk ég verk í bakið sem hefur verið að ágerast og í dag fór ég til læknis eins og ég hef áður greint frá og hann sagði mér beinlínis að skipta um vinnu sem fyrst.
Ég skrapp til vinnuveitandans og hann sagði mér að fyrst svona væri komið þá ætti ég ekki að mæta til vinnu á meðan þetta ástand varði. Ég túlkaði það sem fyrirboða að uppsögn. Ég hef unnið hjá þessu fyrirtæki í mánuð og líkað vel. Bakinu mínu hefur hins vegar ekki líkað vel hjá því þar sem starfið er fólgið í að bera þunga hluti sem eru stundum ekki á þeim stað þar sem ákjósanlegast er að taka þá upp. Siðan er mikill akstur sem ekki er ákjósanlegur.
Það sem liggur fyrir mér núna er að finna mér vinnu við prentsmíðina sem ég lærði einu sinni eða einhverja þægilega innivinnu við tölvu þar sem ég get staðið upp reglulega til að rétta úr mér og lagfæra skrokkinn.
Ég vona að þeir Gestapóar sem lesa þetta sýni mér alla vega smá tillitssemi ef ég fer að verða afskaplega leiðinlegur og neikvæður.
Hvað áttu við með ´ef ég fer að verða... ´
Finnst þér við semsagt ekki hafa sýnt þér tillitssemi svona dagsdaglega ?
Að grínislepptu - þá vil ég óska þér batnaðar & almenns velfarnaðar, hvortheldur á prentvellinum eður annarsstaðar.
Mæli með hlutabréfabraski. Ráð um kauprétti og sölurétti færðu frá hakuchi. Eða gjaldmiðlabrask. Þá er hlebbi rétti maður að spyrja. Hann er með fingerspitzgefühl.
Mig vantar vanan vörubílstjóra. Í boði eru skítalaun, skítsæmilegur sjúkratryggingapakki og frábær mórall á vinnustað. Vertu mættur um sexleytið í fyrramálið.
Leitt að heyra Ívar, vona að þú finnir eitthvað gott starf. Annars er mér líka illt í bakinu. Vill einhver nudda á mér bakið?
Eins og ég hef áður sagt þá þurfum við að stofna lbb (landssamtök bakveikra bagglýtinga)
Veistu... við getum stofnað öll þau félög sem við viljum... við erumhvort eð er algerlega gagnslausir hvort eð er...
já, þú segir nokkuð... félagafélagið svona eins og milljónafélagið... það mætti nú alveg stofna það aftur... eitthvað sem er óborganlega fyndið við félagið gæti réttlætt að það væri kallað milljónafélagið...
Farðu að mínum ráðum. Fáðu vottorð hjá lækninum ásamt slatta af verkjastillandi - taugaróandi- örvandi og vímugefandi töflum. Á vottorðinu skal staðfest að þú sért löggildur aumingi og líðan þín verður betri en þig hefur nokkru sinni dreymt um. Ég keyrði líkt og þú, allar gerðir af bílum. Strætó, sendibíla,vörubíla og lögreglubíla. Þar var ég víst bara farþegi. Sem löggildur aumingi fæ ég launin send heim og ég þarf aldrei að mæta þunnur í vinnu. (Það rennur reyndar aldrei af mér) Það er svo gaman að lifa að ég sef einu sinni til tvisvar í viku. Nægur er tíminn þegar í kistuna er komið. Skál og fimm í munn.
[Minnist flugnabitanna á dögunum]
Þér megið kalla mig aulabárð og ugluspegil hvenær sem yður þóknast...