Fyrir stuttu fóru nokkrir aðilar sem tengjast Baggalútíska heimsveldinu í kóbaltnámur sem fundust fyrir tilviljun hér á landi á ólíklegum stað.
Þegar þangað var komið þurfti að merkja staðinn
Og til að hægt væri að sinna vinnslu var keypt vél til starfans.
Í námum ekki langt frá fóru leiðangurs menn svo mikinn í fráhvarfi frá Gestapó og meitluðu í bergið það sem hugarástandið leyfði á þeim tíma.
Framtíð Baggalútíska heimsveldisins er bjargað!
Langt sumarfrí virðist hafa mjög örvandi á framtakssemi Gestapóa. Hins vegar vil ég taka fram að ef fríið verður jafnlangt á næsta ári og núna, þá mun ég neyðast til að leggja mig inn á stofnun til frambúðar.
Nei, við förum bara í kóbaltnámurnar aftur og eyðum jafnvel lengri tíma þar!
Utanhússþráður?! Er það ekki fullmikið af fersku lofti? Ég er að hugsa um að halda mig bara innandyra með dregið fyrir þar sem kemst enginn sandur í skóna!
Ps. flottar myndir!
Jú myndirnar eru góðar en ég fann þetta ekki og því trúi ég þessu ekki!
Þetta eru leyninámur.
Sjerlegir útsendarar Gestapó fundu þessar námur eftir mikla leit í sumarfríinu.
Gott að hafa eitthvað fyrir stafni í sumarfríinu... ég kvíði næsta fríi!
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer stofnuðum líka laumupúkaþráð utan Gestapós:
Hann er ekki eins sýnilegur og sá sem við gerðum og því skoðast hann sem meiri laumupúkaþráður
Það er rjett en samt eru lömb þarna boðin velkomin og það er aðalatriðið [Ljómar upp].
Rugl og vitleysa er þetta. Það eru að sjálfsögðu engar kóbaltnámur til. Ég var að lesa um kóbalt í sumar í ensku orðabókinni minni, en man ekki hver efnasamsetning þess er,
matrixs@mi.is