— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Ívar Sívertsen
Friðargæsluliði.
Heiðursgestur og  skáldjöfur.
Dagbók - 5/12/05
Ófriður á dvalarheimilinu.

Ég er farinn að hugsa mér til hreyfings á dvalarheimili því ekki er langt í að maður verði farlama gamalmenni.

Ég fór á eitthvað hjúkrunarheimili í dag og var að skoða aðstæður. Gamlar kerlingar á vappi og enn eldri karlar skoppandi eins og gormar á eftir þeim. Það sem mér þótti enn merkilegra var að í þessu hjúkrunarheimili er starfræktur bindi og drottnunarklúbbur sem leggur megináherslur á munalosta (göngugrindur eru ekki leiktæki). Þegar ég gekk eftir gangi 13C þá áttaði ég mig á því hverslags var. Þetta er auðvitað dvalarheimilið sem Haraldur Austmann dvelur á. Ég varð svolítið kindarlegur því auðvitað hefði ég átt að fatta þetta fyrr því það var ekki stundarfriður fyrir hátalarakerfi hússins þar sem einhver af læknunum eða vörðunum voru að yfirheyra Harald. Skelfilegt hvað illa er farið með eins mikinn öðling og hann Harald. Ég alla vega er búinn að leggja inn umsókn um pláss á þessu hjúkrunarheimili þegar ég hef aldur til og það er næsta víst að eitthvað verður undarlegt ástandið þegar ég loksins kemst á dvalarheimili aldraðra gestapóa, DAG.

   (132 af 287)  
5/12/05 11:00

Offari

Var líkið af Ingibjörgu þarna líka?

5/12/05 11:00

Upprifinn

ég mæti á DAG en ekki fyrr en eftir þrjátíu ár.

5/12/05 11:00

Ívar Sívertsen

Ekki sá ég það Offari en lyktin var skrýtin.

5/12/05 11:01

Haraldur Austmann

Ingibjörg var í mat þegar þú borðaðir þarna Ívar minn.

5/12/05 11:01

Ugla

Var Ingibjörg í mat eða í matinn?

5/12/05 11:01

Haraldur Austmann

Mér fannst hún alltaf svo góð.

5/12/05 18:01

Skabbi skrumari

Hún hlýtur að hafa verið vel reykt...

Ívar Sívertsen:
  • Fæðing hér: 11/8/03 12:21
  • Síðast á ferli: 22/6/23 12:25
  • Innlegg: 12356
Eðli:
Ákaflega fagur ungur maður með mikinn metnað og kann sig á allan hátt. (hann lærði það á kvöldnámskeiði hjá Bréfaskóla SÍS)
Fræðasvið:
Ég veit allt, get allt og kann allt en fer rosalega leynt með það og kann að fela það vel.
Æviágrip:
[i]Fæddur að handraðanesi á sóðbrókarströnd í Ristilfirði. Lést skömmu síðar. Reis upp frá dauðum eftir korter og bað um brauð. Eftir það var ekki aftur snúið. Hann hefur síðan verið ánetjaður Baggalúti og virðist ekkert vera að skána.Hann fékk sér fæðingarblett á kinnina skömmu áður en hann lét taka hann af sér. Hann hló skömmu eftir það. Ívar hefur nú hafið búskap á Eyðibýli á Auðkúluheiði. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en hann er all oft kenndur. Sívertsenættin hefur lýst hann útlægan og krafist þess að hann afsali sér ættarnafninu og taki upp nafnið Nestrevís en hann hefur margsinnis hafnað því. Ef þú ert að lesa þetta ennþá þá ert þú líklega jafn skemmdur og Ívar... ef ekki skemmdari barasta. Ertu enn að lesa? Nei nú læt ég leggja þig inn á geðdeild! Það er ekki heilbrigt að lesa svona langt! Viltu hætta þessu! HÆTTU SEGI ÉG!!! Ef þú ert enn að lesa og finnur ekki fyrri vott af þreytu þá skal því bætt við að þegar Gestapó var opnað í árdaga þá gerðist Ívar fastagestur hið snarasta. Hann hefur æ síðan verið einn virkasti gestapóinn og ritað mikið. Hins vegar er ljóst að hann kemur til með að auka viðveru sína á Gestapó á komandi árum því nú hefur hann komið sér í innivinnu við tölvu. Ertu enn að lesa þetta? ÉG held svei mér að þú ættir í alvöru að leita þér hjálpar. Ég er löngu hættur að lesa þetta... ég veit ekki einu sinni hvað stendur eftir línu þrjú. En hvað um það. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og eiginlega svo mikið að það er ekkert salt eftir í sjónum, það lagði á flótta upp í ár og stöðuvötn þannig að nú er sjórinn pakkfullur af ferskvatnsfiskum og ferskvatnshvölum. En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Megasi keisara, að skrásetja skyldi alla drykkina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Gylfi Ægisson var blandstjóri í Stúdjó Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta stjaksetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Rúnar Þór úr Litlu Hraunum frá Hótel Borg upp í Morgunblaðshús, til borgar Davíðs, sem heitir Hádegismóar, en hann var af ætt og kyni Davíðs,að láta skrásetja sig ásamt Maríu hjákonu sinni, sem var þung. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Ældi hún þá bjór sinn frumdrukkinn, sagði hann vondan og lagði hann í fötu, af því að eigi var romm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru barþjónar úti í haga og gættu um nóttina drykkja sinna.Og vörður laganna stóð hjá þeim, og dýrð Áfengis ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög fullir, en löggimann sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag afréttari færður, sem er Hristur og hrærðu, í Mogga Davíðs.Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna gubb vont, lagt í fötu. Og í sömu svipan var með löggumanninum fjöldi himneskra hljómsveita, sem lofuðu stuð og sögðu: Dýrð sé stuði í Hádegismóum, og fiður á Davíð og mönnum sem hann hefur velþóknun á. Þannig hljóðar hið heilaga stuðspjall. Og þegiðu svo!