ÉG hef lítið verið hér og verð enn um sinn. ÉG er nefnilega upptekinn við starfsemi stjórnmálaflokks í undirbúningi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Við Framstæðisfylkingarmenn blásum nú til sóknar.
Ég kem fílefldur að kosningum loknum (svo fremi að gestapó verði ekki farið í sumarfrí)
Gallinn er bara að það er sama déskotans rassgatið undir öllum þessum jólasveinum. Skiptir næstum ekki máli hvað kosið er.
Nermal: Það er satt... en þetta er bara svo helvíti gaman. Og þið sem predikið val á flokknum þar sem ungir eru með einkennismerkið glottir eins og fífl sem og þeir sem halda fram bévítans mönnunum verðið að athuga að D í Reykjavík getur haft sömu markmið og áætlanir og S í Fjarðarbyggð eða VG í Hafnarfirði. Sjálfur starfa ég fyrir meirihlutann á Handraðarnesi á Sóðbrókarströnd í Ristilfirði
Það er alveg víst að það er ekki sjáanlegur munur á öllum þessum flokkum, a.m.k. ekki hér í Reykjavík. Frambjóðendur halda þó öðru fram, tala um að þeir séu traustari og áreiðanlegri en aðrir, en það er oftast bara sagt til að segja eitthvað.
Þó svo að ég styðji ekki Sjálfgræðisflokkinn, þá hálfpartinn vonar maður að þeir nái meirihluta, sökum þess að enginn annar er líklegur til þess. Ástæðan er sú að þegar flokkar ná meirihluta neyðast þeir til að standa við öll fallegu loforðin sín, og geta ekki kennt málamiðlunum eða truflunum samsteypuflokka um ef þeim tekst það ekki!
Ég verð víst þeysandi milli kjörstaða hjálpandi til við að senda út stórtíðindin sem verða einhversstaðar allann kjördaginn þannig að munið eftir smáfuglunum segi ég... [Potar í þingmann]
Það færi betur ef allir fylgdu viturlegum ráðum dordingulls. Sé að þú hefur tekið orð mín frá í vetur alvarlega og í þeim tilgani að öðrum verði ljóst hversu viturleg ráð mín til þín voru og þú gáfaður að fylgja þeim, ætla ég að copy/paste-a kjarna þeirra hingað.
21. Jan. 2006
Ívar minn þú ert á rangri hillu! Mættu á alla fundi hjá því glæpafélagi sem þér líst best á haltu þar ræður þar sem þú lofar donana, skrifaðu lofrullur um þá og flokkinn í dagblöðinn, henstu um bæinn þveran og endilangan með veggspjöld og kosningabæklinga og svaraðu stanslaust í símann síðustu vikuna fyrir kosningar og nær áður en þú veist af ekur þú um á Bens-jeppa sem almenningur kaupir undir þinn fína rass og borgar auk þess hundraðkall fyrir hvern kílómetra sem þér þóknast að aka. Færð millu í mánaðarlaun auk þess sem aurar munu streyma úr öllum áttum fyrir allskonar nefndarstörf jafnvel þó þú vitir ekki til þess að þú sért í þeim. Glæsilegur lífeyrissjóður o.s.f.v...o.s.f.v...o.s.f.v.!!
OG FRÍTT KONÍAK !!!!!!!!!!!!!!!
Andskoti er mikið af stafsetningarvillum í þessu. Hlýt að hafa verið fullur þennan dag.