Nú er sko mál að linni! Hvað í froðufellandi flókaskóm er með þatta ungpólitíska lið? Þessir fábjánar í Sjálfhælnisflokknum (og þá er ég að tala um barnadeildina) eru búnir að opna kosningaskrifstofu!
Er ekki nóg að flokkurinn sjálfur opni skrifstofu? Greinilega ekki. Kapítalískir demókratar (vöggustofan) hefur nú opnað kosningaskrifstofu niðrí bæ og fara ekkert sérstaklega laumupúkalega með það. Ungir áhugamenn um stjórnmál hafa tilhneygingu til þess að vera öfgakenndari en móðurflokkurinn og hafa ályktanir þeirra oftar en ekki verið mjög ýktar og beinlínis fáránlegar, sem reyndar er svolítið fyndið í tilfelli framsóknarflokksins... öfgakenndir tækifærissinnar...
En hvað um það. Sem sagt, bleyjubossarnir í stuttbuxnaflokknum opnuðu þessa kosningavöggustofu með hávaða og látum og kynntu um leið kosningamerki ungra pelabarna í sjálfgræðisflokknum. Merki þetta myndi útleggjast hér á Gestapó sem Glottir eins og fífl en mynd náðist af merkinu. Viðkvæmum skal bent á að byrgja augu sín rétt á meðan horft er framhjá myndinni.
Meira síðar!
Já sammála Ívar..,Þetta er vel að verki staðið hjá stuttbuxna strákunum...Já og við gætum nú aldeilis kennt þeim að skipta út brosköllunum fyrir sviðskipanir...Úje..það væri nú strax framför...Síðan gætum við jafnvel kennt þeim að uppnefna allt og alla, það væri sniðugt... Jahérnahér hvað þetta verður gaman.
Jáhhá... mér finnst bara þetta bleyjubrókarlið eigi að eyða kröftunum með þeim sem virkilega standa í framlínunni heldur en að vera með einhvern svona fíflagang...
Var þetta ekki örugglega í Austurstrætinu nr.6 og byrjaði kl 20:00 í kvöld...Fríar veitingar, tónlist og fíflagangur...Jahérnahér maður kíkir kannski..!..
Heyrðu... þú segir nokkuð... það væri gama... nei annars... ég þarf að taka til í sokkaskúffunni minni...
Hmmm...Jújú heyrt um sokkana þína Ívar minn...Menn gera ýmislegt til að komast í vímu...Ef að þér er sama þá, langar mig nú meira niður í bæ sko hmmm..!..
Neiskoekkinúna-Ívarminn-Kannskiseinna-sjáumst..[reynir að hugsa um e-ð annað] [gerist Sjálfstæðismaður til að gleyma] [Sendir Ívari þakkarskeyti fyrir milligöngu hans í málinu] [Meðfylgjandi er fálkaorðan frá stjórn flokksins fyrir þrotlaust og óeigingjarnt kynningarstarf Ívars í þágu Sjáfstæðisflokksins] tissssssh.
Það er gott að ungt fólk geri sig gildandi í stjórnmálum og láti til sín taka, hvar í flokki sem það stendur.
Lýðræðið byggist á því að ná til fjöldans og nota með því það samskipta- og táknkerfi sem fjöldanum þóknast.
Við megum nú ekki gleyma því að við, fastagestirnir á Lútnum, erum ekki venjulegt fólk. Menn þurfa ekki að lesa lengi til að sjá að eru samansafn sérvitrunga og furðufugla. Við erum á hliðarlínu mannlífsins. Við erum ekki eins og hin. Við stingum í stúf. Við stökkvum í strætó. Við stuðlum. Við segjum ekki
<font size=7>: D</font>
eins og venjulegt fólk heldur
<font size=5>[glottum eins og fífl]</font>
Niðurstaða: Það erum við en ekki ungliðarnir sem erum klikk. Það erum við sem erum utangarðs. En við erum auðvitað miklu gáfaðra, skemmtilegra og áhugaverðara fólk. Þau eru kannski fallegri, enn ekkert umfram það.
Heyrðu handklæðahausinn þinn? Við erum náttúrulega langbest, gáfuðust og flottust hvað sem öllu líður og það sem meira er, við klikkum ekki þegar á hólminn er komið eins og allur lýðurinn sem Ibbi Sybbi telur upp hér að ofan.
Ég er nú fallegri en hvaða sjálfstæðismaður sem er. Mér finnst að við bagglýtingar ættum að bjóða okkur framm til þings við næstu kosningar. Ég legg til listabókstafin X... Settu X við X
Við myndum auðvitað taka yfir B-ið. B fyrir Baggalútur.
Það getur ekki verið of slæmur stafur, hann er jú forsætisráðherra kallinn sem á þann staf núna á sínum flokk.
-
Er ekki G-ið laust? Man nokkur hvorteðer fyrir hvað það stóð hér í denn? Við þurfum auðvitað að fá G fyrir Gestapó!