Ég er einn af þeim sem aðhyllist þá trú er nefnist knattspyrna og um það er þessi pistill ekki en hann kemur inn á hana samt.
Ég hef tekið eftir því í gegnum tíðina að áhangendur íþróttaliða eru ekki allir eins. Þeir sem halda með Val eru ekkert sérstaklega áberandi til þess að gera, þeir sem halda með Fylki eru soldið skrýtnir, þeir sem halda með Fjölni vita bara ekki betur og þeir sem halda með Breiðabliki halda alltaf í vonina. Einn er sá þjóðflokkur sem ekki hugnast mér af íþróttafíklum og eru það K.R.-ingar svo kallaðir. Það er ekkert annað til nema K.R. og enginn annar getur neitt! Þetta er þeirra helsta einkenni og hefur það vakið mikið hatur hjá mér gagnvart þessum aðilum. Þetta er svona geðveikisleg fanatík á borð við aðdáun á Michael Schumacher, Manchester United og Chicago Bulls (þegar þeir voru og hétu). Mann langar helst að fara með jarðsprengjur á K.R. völlinn og bíða svo eftir næsta leik!
Endurspeglar þetta ekki hve illa þjóðkirkjan (eða aðrar trúarstofnanir) uppfyllir trúarþörf landsmanna? Fólk leitar í allskonar vitleysu eins og enska boltann, jóka og K.R.
[Klórar sér inni í hausnum]
K.R ingar eru nottlega stórbilað fólk, það er ekki nokkur spurning. Áfram McLaren
Það er í eðli Fylkismanna að vera stórfurðulegir. Ég meina, Árbærinn er slíkt skítapleis að erfitt er að halda geðheilsu eftir nokkurra ára búsetu. Enda segi ég áfram Fylkir!
Ég er fæddur og uppalinn KR-ingur af landfræðilegum ástæðum en skoðanir mínar á formúlunni eru algjörla mínar eigin. Schumi er besti íþróttamaður allra tíma (ásamt Lance A. e.t.v eitthverjum fleiri ) og Enzo Ferrai var beinn afkomandi ökuþórs og allar afurðir hans og lærisveina hans þar af leiðandi gvuðlegar.
Höldum við ekki allir með Bolton eins og við vorum búnir að tala um á síðasta fyllerí?
Hvað mynduð þér nefna áhangendur Breiðabliks nú, er liðið hefir loks unnið alvöru titil?