Íslendingar eru furðulegar skepnur. Öllum fjandanum er breytt í þeirri góðu trú að allir hagnist á því. Ég er svolítið efins um þessa breytingaáráttu. Tölum um leiðakerfi Strætó bs.
Eins og þeir muna sem á annað borð taka strætó að staðaldri þá var það furðulegur dagur 23. júlí 2005. Fólk sem þurfti að komast frá Hafnarfirði og upp í Salahverfi í Kópavogi hafði tekið leið 140 frá Hafnarfirði í Hamraborg í Kópavogi og þaðan leið 18 upp í Salahverfi. 23. júlí breyttist það þannig að fólk tók S1 úr Hafnarfirði sömu leið og 140 og S2 sömu leið og 18. Einhverjar smávægilegar breytingar voru gerðar á tímatöflum fram undir áramót svona af og til en núna 5. mars urðu hins vegar ofboðslegar breytingar. S1 og S2 voru alltaf á sama tíma í Hamraborg á leið niður á Hlemm og að sama skapi á leið frá Hlemmi. S1 sem var að koma úr Hafnarfirði á leið niður á Hlemm hitti S2 sem var að koma frá Hlemmi, áleiðis upp á Vatnsenda til að koma farþegum í Smáralind og þar um kring. En í dag er ástandið þannig að S2 á að fara 1 mínútu á undan S1 úr Hamraborg áleiðis á Hlemm skv. tímatöflu (hvernig það gengur svo verður komið að síðar í þessum pistli) en þegar farið er í hina áttina er S1 níu mínútum á undan S2, og hér gefum við okkur að ekið sé á 20 mínútna tíðni á stofnleiðum. Samkvæmt þessu ætti S2 að vera farinn þegar S1 drattast í Hamraborgina áleiðis á Hlemmi. S2 var líka breytt þannig að hann ekur ekki lengur upp á Vatnsendaveg heldur fer bara upp Salaveg og niður með Versalalaug. Það eina sem breyttist á S1 var hins vegar tímataflan, komum að því síðar. Lítilvægar breytingar urðu á 21, 22 og 24 en 23 breyttist talsvert en líklega til batnaðar og því verður ekki nöldrað yfir því hér. Hér hafa verið tíundaðar nokkrar leiðir sem aka utan Reykjavíkur. All nokkrar breytingar hafa verið gerðar á S3, S4 og S5, bæði á leið og tíma. nokkrar hverfaleiðir fengu breytingu og verstu útreiðina fengu líklega leiðir 12 og 15 en þá breytingu á tímatöflum.
Nú er það líklega stefna Strætó bs. að farþegar þurfi að bíða, verði pirraðir á óþægindum í akstri og almennt að farþegum fækki. Það er algengt t.d. að S2, S3, S4 og S5 séu allt of seinir og algerlega á skjön við tímatöflur. leiðir 12 og 15 fengu þannig útreið að bílstjórar sem reyna að halda áætlun koma úttaugaðir niður á Hlemm og ekki vantar mikið upp á að þeir fari að skæla. Það er hreinlega glæpur að lengja leið um 10 mínútur á meðan 3 - 5 mínútur eru gefnar til þess á tímatöflu. Og þetta kalla þessir sauðir Final...
Mér þætti vænt um það lesandi góður ef þú gætir séð af smá tíma til að úttala þig um leiðarkerfi Strætó bs. og þjónustuna sem það fyrirtæki veitir. Ekki veitir af að veita þeim aðhald!
Ef ég réði einhverju myndi ég taka upp gamla kerfið í Reykjavík og búa til nýtt kerfi fyrir nágrannasveitarfélögin. Svo myndi ég fara á skiptimiðanum upp á Skaga og fá mér blút á Langasandi!
Það er ansi líklegt að þetta kostulega klúður eigi eftir að kosta fyrrum aðildarflokka (les. Samfylkinguna) meirhluta í borgarstjórn.
Sem betur fer þarf ég ekki að nýta mér þennan ófögnuð að staðaldri, þarsem ég er búsettur utan stórreykjavíkursvæðisins, en hef nokkrum sinnum verið tilneyddur á ferðum mínum þarumslóðir. Þær tilraunir hafa yfirleitt haft í för með sér tímabundinn geðheilsubrest, auk þess að hafa kostað bæði tíma & óþægindi, látum vera með peninga. Fargjaldið væri svosem sanngjarnt ef um raunverulega; velskipulagða, kerfisbundna & aðgengilega þjónustu væri að ræða. Hneisa.
Ég tek undir með þeim fjölmörgu sem hafa réttilega bent á þá augljósu staðreynd, að engin von er til þess að draga úr sívaxandi einkabílaumferð & þeim vandamálum sem henni fylgja, ef þessu gulskellótta grameðlubákni (sem almenningsvagnakerfið er í núverandi mynd) verður ekki kippt snarlega í liðinn, um svosem eitthundraðogáttatíu gráður.
Þetta versnar stöðugt. Ég öfunda þig ekki Ívar minn og það gæti ekkert fengið mig til að setjast
aftur undir stýri á gulu skrímslunum.
Hum!
Er Vímus heiðarlegur núna? (1 kg.?)
Leið 15 hélt aldrei áætlun. Aldrei. Alltaf 7-15 mín. og sein. Nú er þetta betra. Gott mál.
Breytingarnar á leiðarkerfinu hafa hvað mig snertir verið til bóta að öllu leyti og nýja lagfæringin bætir stöðun enn frekar. Þetta er það eina sem borgarstjórnarmeirihlutinn hefur gert vel. Ég ætla samt ekki að kjósa þá.
Mér fannst ofsalega erfitt að lesa þetta félagsrit. Það eru svo margar tölur þarna að ég varð bara allveg ringluð. En nú bý ég ekki á Íslandi lengur svo það skiptir kannski ekki svo miklu máli hvað mér finnst.
Heyr heyr
sammála þér Ívar
gammla leiðarkerfið virkaði of vel
nei annars ættu það að vera bílstjórar strætó sem
ættu að fá að hanna kerfið og ég geng svo langt að seigja gatnakerfið líka ( tja gæti það versnað ?)
Sammála Litlu, hrikalega erfitt að lesa þetta... en mér er svo sem sama... Skál
Hér er hugmynd af góðu strætókerfi.
Frá miðbænum ganga strætó í öll helstu úthverfin
á strætóstöðvum í úthverfum má svo taka innankerfis-strætó sem ekur um hverfið.
Í miðbænum aka svo ókeypis strætóar á 3-5 min fresti.
Á stoppustöðvum verði rauntími sem sýnir hversu langt er i næsta strætó.
Midi sem gildir i heilan dag kosti 250 kr.
Einnig verði hægt að kaupa miða fyrir hverja ferð.
Verðið á þeim miða fer eftir tví hve langt þú ert að fara.
En til eru líka Íslendingar sem eru algjörar skepnur, fólk eins og ég, sem nýt þess að vera skepna.
Hvað er hvorki fugl né fiskur? Maður!!
matrixs@mi.is