Ég gæti skrifað félagsrit um hvert og eitt atriði í þessari útsendingu ríkissjónvarpsins en ég ætla að láta það nægja að hrauna hér í einu!<br /> <br /> P.S. ALLAR MYNDIR ERU STOLNAR AF RUV.IS
Ég vil byrja á því að óska meðlimum ritstjórnar Baggalúts til hamingju með glæstan sigur í spurningakeppninni Tíminn líður hratt og um leið þann verulega vafasama heiður að vera Evróvisjónspekingar Íslands 2006.
Fúlir brandarar, asnalegar kynningar og erfiðir viðmælendur. Þannig klára ég pakkann með kynnana og þeirra pakk. Það var reyndar einn sem stóð upp úr af viðmælendunum og það var Davíð nokkur Olgeirsson. Hann skellti blautri tusku framan í fullt af höfundum þegar það barst í tal að hann væri eini syngjandi höfundurinn í þessari keppni og hann sagði að jú, einhverjir höfundar hefðu ætlað að syngja lögin sín... en hvar væru þeir nú? Og svo var það Gísli Marteinn... AF HVERJU?
Lögin:
Ég ætla ekki að fjalla um þau í þeirri röð sem þau voru flutt!
Úrslitin komu hreint ekkert á óvart. Búið var að markaðssetja þetta svo vel, leka laginu út á netið, skapa mikla og heita umræðu, fá samúð vegna þess að þau sögðust ekki hafa gert þetta og hörmuðu þetta, textahöfundur kærði og þar fram eftir götunum. Ég vil enn að Sylvía Nótt verði rekin úr keppni og að Regína verði send til Aþenu með sinn frábæra flutning. Vonandi verða Hommi og Nammi með bullandi Tremma á sviðinu í Aþenu!!!
Til Hamingju Ísland. Ég horfði ekki á keppnina..En 6 ára dóttir minni líkaði best við Silvíu. Og nú vill hún mála sig eins.
Almáttugur... komdu í veg fyrir það og það strax! Segðu henni að Sylvía sé færeyingur og borði mikið grænmeti... það ætti að slá á áhugann hjá barninu...
Niður að Sæma Rokk get ég samþykkt flest. Lagið var als ekki steindautt. MM, að ekki sé talað um lagið voru hörmung. Restina get ég svo samþykkt með semingi.
Það lag sem að mínu mati skipar BOTN tíu á lista yfir þau lög sem send hafa verið til undankeppninar vann eitt árið. Ástæðan? Höfundur lagsins, Valgeir Guðjónsson, var í tísku um þær mundir, af sömu ástæðu vann S.N. nú.
Herra Ívar Sívertsen þú misstir Riddarann þar sem kemur fram að þú hafir aldei fílað Celine Dion.. Hún sem er ein magnaðasta söng-diva samtímans, jahérnahér..!.. Annars bara fín úttekt Ívar minn..!..
Ég hef nú aldrei verið mjög mikið fyrir Silvíu Nótt, en þetta er bara eina góða lagið í þessari keppni! Öll hin fannst mér væmin og blátt áfram leiðinleg. Silvía hefur einfaldlega bestu möguleikana á því að fá einhver stig í Aþenu.
Herra riddari, ég verð að segja að (eins og sést á félagsritinu og ummælum þínum) þá erum við á öndverðum meiði hvað varðar hana Celine. Mér þykir það afar sorglegt hvernig menn hafa snúið út úr orðinu Díva í seinni tíð. Ég er ekki að saka þig um það persónulega riddari kær. Skilgreining á orðinu díva hefur í gegnum tíðina verið eftirfarandi skv. Grove Music online: Söngkona sem fer að komast á aldur eða er komin á aldur og er minnst fyrir stórafrek sín á óperusviðinu, helst dálítið verkleg að vöxtum og eftir því fyrirferðarmikil þó vöxturinn sé ekki aðalatriðið, oft nefndar prímadonnur. Sem dæmi um dívu má nefnia Maríu Callas. Á diskótímanum fór svo að bera á þessu orði í meðförum samkynhneigðra um söngkonur innan diskógeirans sem höfðu þykka og kraftmikla rödd sem náði djúpt niður og frekar hátt upp. En þetta hefur fram á síðustu ár verið einskorðað við þennan þjóðfélagshóp. Undanfarin ár hafa svo óprúttnir aðilar markaðssett íslenskar söngkonur undir merkjunum Íslensku Dívurnar. EF mér skjátlast ekki þá eru þær um 10 stk. þar sem í raun ein hefur þann möguleika að vera kölluð díva og það er hún Diddú. Hvort heldur sem er innan óperugeirans eða diskógeirans. Kæri riddari. Vissulega er hér um að ræða þitt málfar og ólíkan skilning á orðnotkun en ég vildi bara koma þessum skilaboðum áleiðis. Svo finnst MÉR Celine Dion ver óttaleg rembikerling svona svolítið eins og Kristján Jóhannsson (þegar hann rembist á efstu tónana má heyra rasskinnarnar smella saman þegar hann herpir þær saman) Annars takk fyrir álitið.
Og Furðuvera: Þú kannt bara ekki gott að meta!
Mjer er nú sljett sama hvernig þetta fer allt saman. Hallærislegt tilstand og vitleysa, en blessunin hún Silvía Nótt er passleg í hlutverkið. Ekkert að rembast við að vera eitthvað Gala fyrirbæri. Á næsta ári ættla jeg ekki að horfa á keppnina, sem endra nær, en mun örugglega lesa gagnrýni þína Ívar. Skemmtilegt! Vonandi fer hún úr að neðan líka, svo glitti í skuðið.
Eurovision er bara djók. Hvað gæti þá verið betra en að senda atriði sem er djók út í gegn, flott show, attitude dauðans, catchy og yfirdrifið af glimmeri?
Ég hlakka til að sjá hana á sviðinu í Aþenu, ó já...
Sammála Stelpinu.
Þessi rússneska kosning sem Silvía Nótt fékk, sýndi mér bara að hið ómögulega getur gerst: Íslendingar hafa skopskyn!
Ég er ekki mikill aðdáandi Silvíu, finnst karakterinn of yfirdrifinn til að vera fyndinn til lengdar, en að við (já VIÐ, því ég horfði persónulega á Júróvísjón í fyrsta skiptið síðan ég komst til vits og ára og kaus hana Silvíu) höfum ákveðið að gera okkur að fíflum í Aþenu með að hafa Silvíu á sviðinu finnst mér DÁSAMLEGT. Hreint út sagt mögnuð úrslit.
Við höfum oft sent ömurleg lög í Júró og því ekki að ganga þá alla leið? Senda eitthvað sem er komið í hring og orðið töff aftur?
Ég held að Silvía verði frábært skemmtiatriði og þjóðin sem fílaði Ali G í tætlur (Bretar, fyrir þá sem ekki vissu) ættu að elska Silvíu Nótt, sérstaklega ef hún verður markaðssett í Evrópu eins og búið er að markaðssetja hana hér heima.
Júróvísjón er djók og við hljótum að vinna með þessu lagi [glottir]
Í fyrsta skiptið, síðan að Páll Óskar fór út, ætla ég að horfa á Júróvísjón í maí!
Ég get tekið undir 95% af því sem segir í þessu félagsriti hjá þér Ivar, en okkur greinir á 5%
ÉG nenni ekkert að útlista það hér og nú, en ræði það við þig í góðu tómarúmi.
Þessi keppni er nú bara atvinnubótavinna fyrir fjölmiðlafólk og iðjuleysingja. Þeir sem kjósa í þessu eru mestmegnis 10-12 ára börn.
Mér fannst nú Bobbysokks flottasta atriðið í þættinum.
Hvað myndi nú gerast ef Silvíu yrði rænt af múslimskum öfgamönnum sem óttast léttklætt kvenfólk?
Hver myndi þá syngja ?
Kannski Bobbysokks.
Ég er á því að keppnin sjálf í sinni heild hafi verið sú besta sem afstaðin er en langt frá því sanngjörn. Ég er sömu skoðunar og greinarhöfundur að Silvía nótt verði send úr keppni og Regína verði send til Aþenu. Ellegar er ég hræddastur um að textahöfundar muni ekki samþykkja þáttöku í forkepnni að ári né framvegis.
Ég verð að lýsa stuðningi við orð Stelpsins og Nornarinnar. Júró er djókþ Allt í góðu að senda eitthvað svona glis og glimmer. Við prufuðum hérna um árið að senda "powerballöðu". Hin óendanlega slepjulega viðrinisviðbjóð Heaven með gerpinu honum Jónsa. Það kolféll. Vissulega get ég tekið undir að Regína Ósk er mergjuð söngkona sem hefur ótrúlega magnaða hátóna og væri frábær fulltrúi. En það má alveg djóka með þetta. Það gekk hjá Noregi og Moldavíu í fyrra, gekk hjá Austurríki hérna um árið, og flestir muna eftir hinu ísraelska Húbbe Húlle... Lifi kjánaskapurinn. Til hamingju Ísland!!