Með fréttablaðinu í dag kom inn um lúguna Stúdentablaðið.
Það hefur gerst nokkuð oft að Stúdentablaðið hefur komið með Fréttablaðinu og er það mjög sniðug aðferð til að vekja athygli á málefnum stúdenta. Oft hafa blöðin verið vönduð og efnistök fín. En blaðið sem kom í dag var öðruvísi. Ég er mjög hrifinn af því sem kallað er Grunge art og prýðir ein slík mynd forsíðu blaðsins. Ég opnaði blaðið og fletti í gegnum það og verð að segja að ég hafði ekki mikla löngun til að lesa það. Útlitið er eins og á annars flokks menntaskólablaði. Leturgerðir eru vondar og útlit almennt ljótt að mínu mati. Greinar blaðsins eru vafalítið metnaðarfullar og góðar en ég nennti ekki að lesa þær vegna útlitsins. Mér finnst Stúdentablaðið hafið yfir framhaldsskólaútlit. Stúdentablaðið þarf nefnilega að ná til fólks á aldrinum 20 - 80 ára og einhverra hluta vegna efast ég um að fólk á aldrinum 35 - 80 ára nenni að lesa svona framhaldsskólablað.
Þetta blað hefur öll merki gríðarlegs vanþroska þess sem því stýrir.
Látum vera þótt útlitið minni á framhaldsskólablað eftir byrjanda í umbroti með agðang að of mörgum fontum.
Látum vera þótt ritstjóri sé fanatískur marx-leninísti, fastur í kalda stríðinu. Hann hefur til þess leyfi og starfar í umboði Háskólalistans sem komið hefur í ljós að er deild í Vinstri-hreyfingunni grænu framboði.
Hitt er verra að hvað blaðið er skrifað af miklum naívasma og almennum kjánaskap. Vilji ritstjóri vinna öfgastefnu sinni fylgis ætti hann að leita í smiðju þeirra Ármanns og Sverris Jakobssona. Þar fara menn sem fá mann til að dást að rökfærni sinni og stíl þótt maður sé þeim jafnvel algerlega ósammála. En því er ekki að heilsa í þessu voðalega Stúdendablaði.
Sammála, einstaklega ófrítt blað með ljóta fonta. Hef ekki nennt að lesa það ennþá...
Sjálfur reyndi ég að glugga í blaðið, en dökkt letur á dökkum bakgrunni er ekki læsilegt manni með mína sjón svo blaðið endaði í hrúgunni með hinum ruslpóstinum.
Hver? Ég? Nei, ekki myndi ég a.m.k. tala svona um eigin afurð... Ef þú vilt lesa eitthvað um eigin afurðir manna þá skaltu lesa nýjasta félagsrit Galdra...
Það er einhver ´68 fílingur í þessu. Eins og kubbaletrið í fyrirsögnunum (minnir mann á e-h sem var notað í gamla daga til að merkja vörusendingar) og háa grannaletrið í upphafi greinanna, þetta minnir á dreifibækling frá byltingarsinnuðum hippum. Verst hvað það er óþægilegt að lesa svona letur.
Svo er ógaman að lesa um að enn eru ferlimál fatlaðra við HÍ ekki að fullu leyst sbr. bls 12. Ég man að þessi mál voru í deiglunni þegar ég var í HÍ og það er næstum áratugur síðan.
Ef blaðið væri aðeins meira „conservative“ í útliti þá myndu mun fleiri lesa það.