Ég skrapp með fjölskylduna í ferðalag um suðurland í gær og í dag. Við komum við í uppáhaldsáningarstað Íslendinga um árabil. Hann er ekki svipur hjá sjón.
Við Hexia skruppum austur í Miðhúsaskóg að heimsækja foreldra mína sem stödd voru ásamt börnum okkar í sumarbústað.
Á heimleiðinni í dag lá leiðin í Eden í Hveragerði þar sem upplifa átti liðna tíð og japla á ís. Það verður að segja eins og er að það er af sem áður var. Húsið er illa farið vegna málningarskemmda, innréttingar eru farnar að láta verulega á sjá sökum ágangs og aldurs og ekki má gleyma því að það er mjög langt síðan það taldist vera hallærislegt að vera með garðhúsgögn innanhúss sem samt eru enn í Eden. Svo er helvíts apaskrípið hann Bóbó enn að og það hefur enginn haft fyrir því að skipta út bröndurunum hans.
Við ákváðum að fá okkur sjeik í stað íss og þegar hann var afgreiddur fylgdi sú saga með að sjeikmaskínan væri eitthvað biluð og því þyrfti að blanda mjólk í sjeikinn. Mér fannst það eiginlega lofa góðu því ég hata hnausþykka sjeika sem maður þarf að borða með skeið. Sjeikinn var þykkari en steinsteypa og mér fannst hann ekkert sérstakur.
Ég gef Eden í Hveragerði eina stjörnu fyrir hvað það var gaman að koma þar sem barn. Það er ekkert gaman núna.
Það er oft sem að sjarminn vill hverfa af hlutum sem manni þótti stórmerkilegir sem krakki.
En heitir apinn Bóbó? Það vissi ég ekki.
Það er greinilegt að fólk er bara farið að dásama bóbó! Ég held ég verði að skrifa annað félagsrit til að forða þessum ósköpum.
Bóbó gaf mér kanínu og á henni stóð: „Whatever, you moron.“
Vinur minn lék sama leik og fékk kanínu sem á stóð: „Hi, idiot.“ Bóbó er illmenni.
Bóbó hljómar sem áhugaverður náungi. Kannski ég heilsi upp á hann við tækifæri, ég og herra pútter!
Áhugavert félagsrit, innblásturinn að Öpunum í Eden án vafa.
Vertu annars blessaður Ívar [Skálar]