Það var og!
Ég skrapp í gærkveldi ásamt tíu þúsund öðrum að sjá og heyra hljómsveitina Iron Maiden. Mikið var ég búinn að hlakka til og var sú tilhlökkun alveg tilhlökkunarinnar virði. Ég mætti um það bil sem upphitunarhljómsveitin átti að vera að byrja og þurfti að standa í langri röð. En þrátt fyrir löngu röðina þá fékk ég stæði við hliðina á Egilshöll. Þegar inn var komið heilsaði ég Enter sem þarna var ásamt fylgdarmeyjum. Hann virtist jafn spenntur og ég að sjá þessa æringja að utan.
Upphitararnir byrjuðu reyndar ekki fyrr en 40 mínútum á eftir áætlun en það var allt í lagi því að þeir voru góðir. Og Iron Maiden hóf leik á tilsettum tíma.
Þegar Maiden steig á svið upphófst agaleg keyrsla sem ég hef aldrei áður séð á sviði. Allir hljóðfæraleikarar spiluðu af krafti og festu og söngvarinn hann Brúsi Völsason var sem gorumur milli sviðsvængja og uppi á palli fyrir ofan trommurnar. Stebbi Harðar, bassaleikari, tók alla sviðstaktana sína og lék eins og aldrei fyrr. Gítarleikararnir Dabbi Marðar, Arnaldur Búi og útlendingurinn með skrýtna nafnið sýndu öllum viðstöddum gítareigendum hvað það er að spila vel á gítar. Trommuleikarinn, Nikki Gáfnaljós, barði bumbur sínar betur en nokkur tónleikaupptaka hefur áður leyft manni að heyra.
Þessir tónleikar voru í alla staði vel heppnaðir og vona ég að Iron Maiden komi aftur því þá ætla ég aftur að sjá þá og heyra!
[Hoppar af gleði]
Ohh.. þetta voru svo yndislegir tónleikar!
[Stynur]
Þeir eru æði á sviði! Algjör snild þegar Eddie mætti á sviðið!
Þeir hafa nákvæmlega engu gleymt!
Ég ætla að endur taka það sem ég sagði á Iron Maiden þræðinum. Þetta var gaman en sándið sökkaði feitt.
Þú hefur ekki fengið þér neinar veitingar eða hvað?
Ég var nefnilega að vinna, og fékk þessvegna borgað fyrir að standa í mestu þægindum og ekki of miklum hita með ágætt útsýni yfir sviðið.
Er sammála Nafna varðandi hljóðið, byrjaði mjög illa en smábatnaði. Varð aldrei almennilegt samt.
Ég söng með hverju einasta lagi allan tímann. Það er alltaf gaman að textabesservissast.
Mér fannst upphitunarsveitin eiginlega betri, þó að Maiden hafi verið frábærir, fyrir utan hvað hljóðið sökkaði í byrjun.
Þið heppin fyrir að meiga fara. En þið eigið ekki . . . eiginhandaráritun frá Bruce Dickinson!
Ég er rosalega sáttur við tónleikana.
En ég er ekki nógu sáttur við upp hitunar hljómsveitina. Þeir meiga þó vera roggnir með hvernig þeir tóku „I like big butts “ til heiru henni Dóru forseta frú.
Iron Maiden er upphaflegt heiti á skriðdýrinu Margréti Tatcher, en Tony Blair tók upp stefnu hennar eftir að hún féll frá. Ég átti eitt sinn gamla diska með þeim, nú er ég vaxinn upp úr þeim, og ´hvað eru plöturnar þeirra orðnar margar? Hefði gaman af að vita það.
kær kveðja,
matrixs@mi.is