Hér hafa menn farið mikinn í hatri sínu á Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva. Margir hafa bölvað Rúv fyrir skylduáskrift af þeim sökum.
Elsku dúllurnar mínar. Það er margt hægt að rita illt um téða keppni. En það verður að segjast eins og er að „Dallas-heilkennið“ er farið að gera vart við sig.
Hvað er „Dallas-heilkennið“? kann einhver að spyrja. Jú, það er þegar eitthvert sjónvarpsefni er þess eðlis að fólki finnst skömm af því að horfa á það og neitar því en horfir engu að síður á það til að geta verið með í umræðunni og þykir í flestum tilfellum gaman.
Þetta á vel við Evróvisjón söngvakeppnina. Af hverju erum við að blása okkur svona út við að hafna þessari ágætu skemmtun? Það er nefnilega ákaflega gaman að fylgjast með þessum sirkus og sjá alla „hommsana“ eins og Svavar Örn hárgeiðslumaður orðar það. Af hverju látum við þetta ekki bara vera áfram þetta furðulega sjónvarpsefni, lítum jákvætt á málið og hættum að blása eins og gamlir karlar sem sjá ekkert nema fýlu og neikvæðni í hverju horni?
Höfum það í huga að fulltrúar Íslands í Evróvisjón söngvakeppninni gætu hugsanlega átt sér líf hér á Gestapó og með svona umræðu er ekkert ólíklegt að einhver þeirra segi skilið við okkur.
Aðgát skal höfð í nærveru alteregóa!
Sjálfum finnst mér þetta hallærisleg keppni en hef gaman af því að sjá hvað er að gerast í tónlistinni í öðrum l0ndum. Sumt gefur skakka mynd en annað gefur alveg rétta mynd. Einnig finnst mér gaman að sjá hvernig fólk kemur fram fyrir þjóðir sínar og verð ég að segja að mörg lönd senda einhverja arfaslökustu meinta tónlistarmenn sem þeir eiga en þeir eru bara í klíkunni.
Þetta er og verður alltaf pólitískur sirkus, gleymum því aldrei. Og nú er austurblokkin orðin svo sterk að við eigum okkur ekki víðreisnar von í bili.
En gættu þín að stimpla ekki fólk sem í raun réttri horfir ekki á Eurovision. T.d. hef ég ekki heyrt framlag Íslands og stefni ekki á að bera mig eftir því.
-
Nokkuð til í þessu Dallas-heilkenni hjá þér. Ég man eftir ónefndum frænda mínum sem bölvaði keppninni árlega, en hélt svo júróvisjón-partí.
Auðvitað stimplar maður fólk ekki fyrr en maður veit hvort það veit eitthvað. En það er ótrúlega mikið um það að fólk neiti að hafa horft en veit þó allt.
Ég horfði t.d. ekki á þetta í gær, en tókst samt að hrósa Noregi fyrir skemtilegan fluttning og hlægja að Moldovum!
Mér þykir þú einhæfur í skoðunum Ívar Sívertsen. Hvernig væri nú að sjá hina hliðina?
Stattu þig ívar! Sjálfur horfi ég alltaf á vissa hluta þessa efnis það er auðvitað frammistöða okkar manna, atkvæðatalningin og eitthvað smávegis þess á milli
Limbri: [En gættu þín að stimpla ekki fólk sem í raun réttri horfir ekki á Eurovision. T.d. hef ég ekki heyrt framlag Íslands og stefni ekki á að bera mig eftir því.] Ég öfunda þig. Ég vildi að ég hefði sloppið við þetta bévítans garnagaul...annars hefur Júrósýn fullan rétt á sér sem afsökun fyrir drykkju, rétt eins og verzlunarmannahelgi og laugardagar.