Nú hefur komið upp mikið þrætuepli innan Baggalútíska samfélagsins á Gestapó, nefnilega pólitík kjötheima.
Ástæðu þessara skrifa vita líklegast flestir þeir sem fylgst hafa með undanfarnar klukkustundir. Hinn ágæti gestur Gröndal opnaði þráð á Baggalútíu þar sem farið var fram á stuðning við frambjóðanda til formannskjörs í Samfylkingunni. Undirritaður ásamt öðrum friðargæsluliða fórum þess á leit við ritstjórnarmeðlim að þræðinum yrði lokað þar sem okkur fannst slíkur þráður óviðeigandi á Gestapó. Eftir að hafa litið á rök í málinu þá hefur skoðun mín breyst örlítið og get ég verið sammála þeim sem telja hann eiga heima á þráðasafninu Efst á baugi.
Friðargæsluliði Baggalútíu hefur hins vegar lítið verið á ferli undanfarið og því erfitt um vik að fá hann til að sinna sínum störfum. Þess vegna finnst mér að bæta þurfi við friðargæsluliða á Baggalútíu til að við þurfum ekki að ónáða ritstjórnina með svona kvabbi og kveini heldur gera þetta bara sjálf. Ekki ætla ég að fara að leggja til hver ætti að fá lyklavöld að Baggalútíu en ljóst er að það verður að vera einhver sem er hér tíður gestur og sækir Baggalútíu oft.
Einnig finnst mér vanta sárlega ráð til nýliða eða reglur vegna notkunar Baggalútíu. Slíkt finnst á Almennu spjalli, Efst á baugi og á Lygilega vinsælum leikjum. Ekki þarf að setja svoleiðis reglur á Undirheima en vissulega má skella upp slíkum leiðbeiningum á Vísindaakademíuna og Sögur, gátur, leikir og dægradvöl. Enn fremur má setja upp reglur varðandi Kveðist á þar sem einnig koma fram algengustu bragfræðireglur.
Einhvern tíman nefndi ég við ritstjórnarmeðlim að það gæti verið gott fyrir þá sem sinna friðargæslu að hafa einhvers konar aflokað svæði til að ræða álitamál sem upp koma. Eitthvað virðist það hafa annað hvort fallið í grýttan jarðveg ellegar gleymst. Mér finnst að friðargæslan eigi að hafa sína Sixtusarkapellu til að bæði greiða atkvæði um framkvæmdir sem og ræða þau mál á jafnréttisgrundvelli svo ekki þurfi að koma til einræðistilburða að einhverra mati. Þar myndi ritstjórn einnig hafa óheftan aðgang og vera friðargæsla með því svæði.
Ég vona að hér eftir sem oft áður getum við lifað í sátt og samlyndi. Skoðanir manna eru misjafnar og við verðum öll að sætta okkur við það.
Já á að fara að búa til reykmettuð bakherbergi til makks og einkavinavæðingar hér á lútnum?
Er ekki tilvalið að menn horfi aðeins á ketheimana og reyni að læra af þeim?
Auðvitað ætti að hafa aukafriðargæsluliða á Baggalútíu. Legg til að Hakuchi og Hilmar Harðjaxl varakeisari taki það verkefni að sér. Þeir eru báðir hérna öllum stundum.
Annars er þetta óskapleg hysteria yfir engu - þráðurinn hans Gröndals er bráskemmtilegur og á fullt erindi hingað.
Já, þetta er bara stormur í vatnsglasi, það er einmitt mjög gaman hjer núna af mörgum ástæðum. En það er rjett að það vantar varafriðargæsluliða í Baggalútíu og líst a.m.k. oss vel á þær tillögur er komið hafa fram í því sambandi.
Ég sé bara ekki að nokkur ófriður hafi verið á þessum þræði. Ef fólk ekki þolir eða vill lesa það sem er skrifað á einstökum þráðum, á það bara að líta framhjá þeim. Sé ekki þörfina á friðargæslu vegna þessa.
Jamm, líklega rétt hjá þér... ég las reyndar ekki þennan þráð fyrr en eftir að hann var lokaður, einfaldlega vegna þess að ég fer eitthvað minna á Baggalútíu svæðið en önnur svæði... en það er bara ég... ég hefði líklega bara horft framhjá þessu eða ruglað aðeins í þessu ef ég hefði tekið eftir honum í tíma... nú nenni ég því ekki...
Ég legg til að ég verði friðargæsluliði. Eða jafnvel yfirgæsluliði. Eða að mér yrði bara gefinn Baggalútur yfirhöfuð. Hvernig litist ykkur á <i>Smábaggi - eigandi ritstjórnar</i>?
Hvað sem öðru líður, mætti taka til fyrirmyndar fyrirkomulagið á leikjaþráðunum. Þar erum við Ívar og Sverfill 3 með lykla af 2 þráðum. Gera mætti slíkt hið sama við fleiri, til að auka líkurnar á því að einhver sé inni ef eitthvað óskemmtilegt á sér stað.