Tannálfurinn kíkti óboðinn í heimsókn til mín. Ég kann honum litlar þakkir fyrir!
Í gærkveldi fengum við hjónin okkur smá konfektmola og vorum að kjamsa á því þegar súkkulaðibiti stakkst á kaf í brotinn endajaxl. Það hafði gróið hold yfir eitthvað af brotasvæðinu og taug komin yfir. Ég varð blár, rauður og... ja fokkitt ég varð bara eins og litaspjald frá Litaveri. Annan eins sársauka hef ég sjaldan eða aldrei fundið. Ég kýldi í mig 3 parkódín og 1 íbúfen 400mg og lagðist fyrir og orgaði. Ég fór að dofna og lagði kaldan bakstur á verkinn og við það dofnaði hann. Í morgun vaknaði ég hálf sjö og fékk mér eina parkó í við bót. Síðan var ræs kl 8.30 og ég hringdi í tannlækninn minn sem er í Keflavík. Hún sagði mér bara að koma til að láta kíkja á þetta og ég brunaði suðreftir hálf vankaður ennþá af parkódíninu. Þar var það ákveðið að þessi jaxl skyldi fara og það strax! Endajaxl í neðri góm vessgú sem er það erfiðasta sem tannlæknar lenda í þegar draga á úr tönn... sérstaklega þegar tönnin er eins illa farin og mín var. Það tók talsverðan tíma að ná helvítinu úr og það má eiginlega segja að það hafi kostað mikið blóð, talsverðan svita og einhver tár. En karlmenni eins og ég er með mjög lágan sársaukaþröskuld og var farinn að kveinka mér áður en ég gekk inn á tannlæknastofuna. En hvað um það, ég fékk síðan uppáskrifað fyrir parkódín FORTE (sem sagt hávært parkódín) og á að éta það meðan ég finn til. Ég kem til með að vakna bólginn á morgun og þá verður gaman... eða ekki.
Hryllilegt er þetta. Ég er enn með alla endajaxla og ætla sannarlega að reyna að halda því þannig, sérstaklega eftir að hafa lesið þessa sögu. Ívar, þú ert ekki öfundsverður.
Ég minni gesti á að nota ekki orð á borð við 'fokkitt' hér á Gestapó. Ef að höfundar finna sig knúna til þess að blóta vinsamlegast blótið á íslensku.
Ég vil einnig minna þig á Ívar að taka niður sólgleraugun á meðan þú ert hérna inni.
K.
Já, það liggur við að maður telji tannpínuna verðskuldaða þegar slík orðskrípildi eru látin flakka hér. Verri þykir mér þó notkun orðsins 'vessgú', en notkun þess var nú dauðasök í minni sveit.
Parkódín Forte? Þá máttu ekki keyra bíl vinur minn. Þetta eitur er sterkara en morfín.
En annars er til gott ráð við tannverkjum. Jeg ljet gera við allt draslið í Tælandi. Kostaði bara 5.800 kr. takk fyrir og fínt frí í kaupbætir.
Segi það sama, fór bara til Tælands og lét draga úr mér stellið. Fékk þennan fína pilt í kaupbæti.