Ritstjórn gefur okkur nýjungar í stórum stíl
Ég sé að þeir sem eru núna á lista yfir 10 efstu heimavarnarliða hafa fengið aukamynd af sér með helstu upplýsingunum. Einnig hafa þeir bætt við teningakasti. Menjasafnið er komið með samhverfum, þríförum og útvarpsþáttum og svo maður tali nú ekki um þá skemmtilegu nýbreytni, RAFMÆLIN. Hafið þökk fyrir allar viðbæturnar!
Já, þetta eru stórskemmtilegar viðbætur, sjerstaklega menjasafnið. Og sjerstaklega viljum vjer hjer með láta opinberlega í ljós fögnuð yfir því að það skuli bætast við menjasafnið (þó slíkt þýði að strangt til tekið sje þá eigi lengur um menjasafn að ræða). Það er oss einnig gleðiefni mikið að ritstjórnin skuli aftur farin að halda dagbækur því innsýn í skyldum hlaðið líf ritstjórnar er fróðlegur lestur - jafnvel stundum fróðlegri en frjettirnar. Því miður grunar oss þó að samkomulagið innan ritstjórnar mætti stundum vera eilítið betra.
Gaman að fá að upplifa þróun og nýsköpun með ykkur þegar maður er ungur að Baggalútskum árum. Því fögnum vér...
Smábaggi minn...Ég hefi fyrir því öruggar heimildir að Enter sé afkastamikill maður bæði í Lútheimum jafnt sem Raunheimum og hafi meira en nóg fyrir stafni.
Ég hef einmitt líka heyrt það um Enter að hann sé afkastamikill í hinum ýmsu heimum. Ætli þar sé ekki komin sönnunin á tímavélanotkun hans?
Mig hefur lengi grunað að "Enter" sé Gísli Marteinn Baldursson, enda er ég þekkt fyrir að hatast við frændur mína, en girnast þá á laun.
Elsku Tina mín, það er óþarfi að móðga Enter svona hryllilega. Uss, Gísli Marteinn. [verður ómótt við tilhugsunina um Enter sem GMB og laumulega grind Tinu í GMB]
Hvernig gerist ég heimavarnarliði? Ég er mjög gagnlegur, því að kjafturinn á mér og klærnar eru nægilega öflugt vopn í heimavörnum,
Mig langar til að skilgreina sjálfann mig sem heimavarnamálaráðherra Baggalútarins. Hvert fer ég til að senda lítið letur fyrir neðan stóra letrið eins og hinir sem er grátt á litinn, þar sem t.d. stendur upplýsingaráðherra eða eitthvað svipað?
matrixs@mi.is