Væntanlegur er til landsins einn mesti skáksnillingur sögunnar, eða hvað?
Það kom fólk í heimsókn til okkar Hexiu í kvöld. Þetta fólk samanstóð af konu og karli. Hún íslensk en hann breskur. Hann hefur búið hér í tæpt ár en þau bjuggu um árabil í Bretlandi. Rætt var mikið og hátt um daginn og veginn og ýmislegt sem því viðkemur. Svo minntist ég eitthvað á það að Bobby Fischer væri væntanlegur ef allt gengi að óskum. Bretinn svaraði að bragði „Who is Bobby Fischer?“ eða í lauslegri íslenskri þýðingu og staðfærslu minni „Hver er Róbert Þorsksson?“
Sýnir þetta okkur ekki bara það að Bobby Fischer er bara frægur á Íslandi? Það halda allir að hér sé að koma snillingur en ég held að hér komi bara einhver klikkaður sérvitringur sem kemur til með að búa í húsnæði Skáksambandsins og bjóða til sín rónum að tefla? Ætlar japanska kærastan hans kannski að koma með líka? Sú má vera meira en lítið biluð að vilja tengjast ástarböndum við slíkan mann.
Einhvern tímann minntist Enter á það að fyrst heimsmeistarinn í skák væri á leiðinni þá væri rétt að bjóða hingað heimsmeistaranum í jójó. Ég held að allir spilapótintátar heimsins komi nú og krefjist landvistar.
Lúdó, Slönguspil, Trivial Pursuit, Risk, Rommí, MasterMind, Sjóorusta, Damm, Mylla, Yatzee, Veiðimaður, Kleppari, Míkadó, Twister, Útvegsspilið og Emil í Kattholti eru spil sem líklega geta gefið mönnum landvistarleyfi hérlendis svo fremi að menn hafi einhvern tíman orðið heimsmeistarar í viðkomandi spili.
Sæmi Rokk fékk að fara til Japan að sækja Bobby. Ég krefst þess að fá að fara til Burkina Faso og sækja heimsmeistarann í Hæ Gosa!
Og ég vil fara til Addisabbaba og fá heimsmeistarann í fílasaurvarpi hingað til landsins... hann á skilið að koma... gæti kannski íslenskað þessa íþrótt og farið að keppa í búfjársaurvarpi!
Þú hefur greinilega aldrei séð fílasaur, Norn mín kæra.
Þetta eru kögglar á stærð við handbolta og ætti þvi ekki að gera lítið úr þessari íþrótt.
Ég spurði eitt sinn róna sem að lagði til mín með múrsteini í suðrænum löndum, hvort hann hefði heyrt getið um Leif Heppna, hann varð ekki fyrir svörum, þótt hefði dregið sýnilega af honum við þessa spurningu og að lokum sættumst við á að deila bróðurlega smápeningunum er ég hafði í vasanum sem taldi á þeim tíma 150 krónum lenskar. Ég geri ráð fyrir að hann hafi keypt sér máltíð í hvaða formi sem hún var fyrir aurana.
Stóra spurningin sem sótti á mig er ég átti næturgöngu meðfram strönd einni er slysaðist til myndast þarna í kjölfarið á þessu atviki, var sú hvort að máltíðin hans myndi bragðast betur ef hann vissi hver Leifur Heppni var?
"Sýnir þetta okkur ekki bara það að Bobby Fischer er bara frægur á Íslandi?" - spyr Ívar.
Nei, þetta sýnir okkur bara að gestur Ívars veit ekki hver Bobby Fischer er.
Prins: Þú virðist ekki átta þig á því hvað ég er að fara. Ég er að meina að það er látið með þennan spilagosa eins og hann sé gersemi heimsins. Hann er það ekki. Þetta er bara kolruglaður vitleysingur sem flestir hafa gleymt.
Neinei, þetta er snillingur. Alger snillingur... geðveikur vissulega, en snillingur. Og ef það er eitthvað sem má vera meira af á Íslandi, er það snillingar.
Neinei, þetta er snillingur. Alger snillingur... geðveikur vissulega, en snillingur. Og ef það er eitthvað sem má vera meira af á Íslandi, er það snillingar.
En þetta er alger auðnuleysingi og vitleysingur! Hann getur ekkert unnið sökum klikkunar og er vanþakklátari en allt vanþakklátt! Út með manninn! Ég vil heimsmeistarann í HæGosa!
Þetta er náttúrulega mjög atvinnuskapandi fyrir fagfólk á sviði geðheilbrigðisþjónustu.
Já, en þar sem mikill niðurskurður er í heilbrigðiskerfinu þá er allt of mikið af fólki sem ekki fær viðeigandi meðferð og hann yrði bara pjúra viðbót við það.