Tímabært að taka til athugunnar að gera safndisk með lögum með og eftir manninn með brothættu flauelsröddina!
Einn er sá maður sem hefur smyglað sér á ótrúlegustu staði í gegnum tíðina. Hann hefur leikið, sungið og komið fram með einum eða öðrum hætti í mörg ár. Maðurinn er sjálfmenntaður leikari en á að baki einhver ár í hljóðfæranámi.
Maðurinn er Eggert Þorleifsson.
Ég veit að ég hef ekki heyrt allt sem hann hefur gert en ég ætla að tæpa á því helsta sem ég man eftir. Hann kom fram á plötunni Lög unga fólksins með Hrekkjusvínum og söng þar feykilega góðar bakraddir í mörgum lögum sem og lagið Ævintýri sem er eitt af fallegustu lögum íslenskrar dægurlagamenningar. Það er lag sem henntar brothættu röddinni vel. Hann söng líka með Valgeiri Guðjónssyni og Sigurði Bjólu á plötunni Jolli og Kóla lagið Sæl og blessuð sem fjallaði um bræður sem eiga brauðgerð. Þeir komu reyndar fyrir í nokkrum lögum á þeirri plötu en mest í þessu. Einnig tók Eggert lag með furðuhljómsveitinni Faraldri, lag sem ég man ómögulega hvað heitir en það er þekkt undur heitinu Lítil typpi lengjast mest. Í myndinni Með allt á hreinu sem skók bíóhúsin 1982 söng hann brot úr lagi sem situr alltaf fast í hausnum á manni. Textinn í laginu er einhvern veginn svona: <b>Mig langar til að segja þér, minn kæri, um hvað það er sem ólgar inn í mér</b><i> (ég reyndar man ekki þennan texta en minnir að hann hafi verið svona)</i> og í miðju lagi ryðjast Gærurnar inn í húsið, reyna að taka yfir sviðið og lagið fer í upplausn. Egget hefur vafalaust sungið mikið undanfarin ár en með aukinni útgáfu og meira frjálsræðis á því sviði hefur það kannski drukknað í óþolandi verksmiðjupoppi og vélbyssudanstónlist útvarpsstöðvanna. En í myndinni Í takt við tímann kemur hann fram á ný sem rótarinn Dúddi og syngur Eggert þar eigið lag og texta sem heitir Saklaus. Hann gerir það vel og lagið er gríðarlega fallegt! En eins og Eggerts er von og vísa þá endar það á litlum brandara sem bæði fellur undir flutningsgrín sem og bragfræðigrín. Ég ætla að láta lesendum eftir að hlusta á það sjálfir
Það er mín von að einhver hljómplötuútgefandinn leggist nú í grúsk og leiti að lögum sem Eggert hefur sett mark sitt á með söng eða klarinettuleik sínum og skelli þeim saman á einn disk... a.m.k. svona bestof disk. Við eigum það skilið að fá þessi lög, Eggert á skilið að honum sé sýnd þessi virðing.
Talsetning hans á Tinna, var að sjáfsögðu eitt af 7 eða þá 8 furðuverkum heims, aleinn með allar raddir.
Riddarinn grenjaði úr hlátri þegar ég heyrði fyrstu spóluna. Kemur þessu máli ekkert við þannig, bara svona Riddara útidúr. Muhahahah
Ég myndi nú kannski orða það meira svona, fágætur og frábær, en það er bara ég. Muhahaha
Já var hann með allar raddirnar þar ? Þumall upp fyrir hann. Þetta er sama dæmi og Örn Árnason gerði með Bangsa Bestaskinn og Laddi gerði með Strumpana.
-
Sammála, þetta væri góðra gjalda vert.
Titill lagsins sem þú ert að tala um er svomikiðsem "Heilræðavísur Stanleys".
Skráður flytjandi er "Faraldur", en það mun hafa verið band sem sett var saman tilað troða upp á samnefndri útihátíð á Laugum í Reykjadal um verzlunarmannahelgina 1986 efégmanrétt. Stórmerkilegt lag.
Eggert er snillingur og jú hann söng eitt lag í stonefree, man ekki í augnalokinu hvað það heitir, en Maðurinn er snillingur.