BÚMM!!!
Í fjelaxritum hefur eitt og annað verið ritað um lítið ágæti meðferðar ungliða á skotvarningi þeim er við áramót er BÚMM kenndur. Ég á því óláni að fagna að búa í hverfi þar sem lítið er um börn en BÚMM þeim mun meira um unglinga sem eru BÚMM á aðal BÚMM fikt aldrinum. BÚMM Mér finnst það verulega pirran-BÚMM-di að vera í vaktavinnu og þurfa að þo-BÚMM-la það að vakna hvað eftir BÚMM annað við hel-BÚMM-ví-BÚMM-tis fiktsprengjurnar sem eru í raun eitth-BÚMM-vað sem krakka-BÚMM-fíflin hafa sett sjálf saman BÚMM. Ég skora á þá sem þetta lesa að skera upp BÚMM herör gegn þessum ódámum svo að við sem BÚMM þolum þetta il-BÚMM-la fáum frið!
neeehh leyfum þeima að leika sér. Því meira fikt því nær styttist æi að þau springi bara. Hvers vegna læturu þau ekki fá eitthvað sprengiefni sjálfur sem þú ert viss um að drepi þau?
Herra Ljón Vitringanna ekki tel ég þetta vera góða lausn, sitjum á okkur, þetta er alveg að verða búMMið.
Fara að framleiða rörasprengjur með extra stuttum kveikiþræði úr hraðbrunapúðri og dreifa meðal unglinga? Það er þá öruggt að einhver slasast.
Ég á bara ekki til orð, önnur en að umræðan er komin örlítið út fyrir ramma velsæmis. Hér er stungið uppá að dreifa sprengjum með stuttum kveikiþræði til að, blessuð börnin sprengi sig í loft upp. það vantar ekki góðvildina þar. En auðvitað er bara allir að grínast og þetta er kallað grín. Í öllum bænum grínist með eithvað annað en þetta, hér hefur verið mikið talað um velsæmi ákveðinna persóna þar sem neðanbeltistal og fróunarórar voru mikið í umræðunni og hleykslaði alla, trúið mér þetta er öllu verra, sýnið manndóm ykkar í að eyða þessu eins og skot.
Þá afritar maður félagsritið, eyðir fyrra eintakinu og öllum orðabelgjum með. Svo leggur maður félagsritið aftur inn, orðbelgjalaust. Best gæti þó verið að taka einnig afrit af öllum orðabelgjum inn í .txt skjal (bara til að tapa engu).
-
Þetta var nú kolsvartur neðanbeltishúmor hjá mér og ekki ætlaður til að taka alvarlega.
Æi andskotans búmm vitleysa er þetta maður. Maður er stanslaust að heyra búmm og búmm og búmm, ka - búmmm og bimsarabims svo oft að það er búið að endurtaka það um allan heim. Ég skil ekki þetta búmm og þessa búmm búmm þráhyggju,
matrixs@mi.is