Hreint stórkostlegir tónleikar í gærkveldi!
Ég fór á tónleika í gær.
Við fórum að sjá Reggaesveitina Hjálma og KK.
Það var gaman.
Svona hefði ég skrifað þegar ég var 8 ára. En núna segi ég: Djöööööfulli var hriiiiiiiikalega gaman á tónleikunum í gær! Hjálmar er eitt þéttasta band sem ég hef heyrt í lengi og KK viðbótin var ekkert slor. Fyrir hlé var prógrammið blanda af lögum Hjálma og KK en eftir hlé var hlutfallið hærra KK megin. Hjálmar eiga reyndar ekkert mörg lög en það safnast í sarpinn. Síðasta lag fyrir hlé var KK-lagið Englar himins grétu í dag og var þar um að ræða útgáfu sem gerði útgáfuna á plötunni að hjómi einu, slíkur var krafturinn! Í Hjálmum eru prýðis spilarar og greinilegt að engir viðvaningar á ferð. Að minnsta kosti tveir Hjálmanna eru úr Fálkum frá Keflavík en þó veit ég það að bassaleikarinn [sem hafði nánast samfarir við bassann sinn á sviðinu, þvílíkur var fílingurinn] er sænskur... og mikið djööööfulli var hann góður! Bakraddasöngkonan sem kom fram með þeim í gær minnir mig að heiti Esther Jökulsdóttir. Þar er á ferð alveg svakalega kraftmikil og góð söngkona. Hún átti eitt sólólag sem ég þekkti ekki en hún gerði það vel!
Í heildina var efnisskráin frekar hæg og því skapaðist þægileg stemmning meðal gesta. Einnig var talsvert um að lög væru lengd vegna gífurlegra einleikskafla þar sem tónlistarmennirnir sýndu hæfni sína. Á milli laga var ekkert verið að stressa sig viðað telja í næsta heldur var spjallað við gesti á gamansömum nótum og allt gekk fyrir sig meira eins og á æfingu en á tónleikum hvað það varðar en lögin voru vel flutt.
Sem sagt: Stórkostlegir tónleikar!
Ætti þetta ekki að flokkast undir gagnrýni Ívar minn, með stjörnugjöf og allt?
Þessu var vont að missa af, er fyrirhugað framhald af þessum tónleikum Ívar minn, gaman væri að heyra um það og þá hvar, hvenær.
Svo skemmtilega vill til að í febrúar 2005 er vona á öðrum tónleikum með KK og Hjálmum. Nánari upplýsingar verður að finna á www.hjalmarmusi.com þegar nær dregur