... Þórólfur Árnason hlýtur að spyrja sjálfan sig þessa.
Ég hef fylgst svolítið með þessu blessaða bensínmáli í talsverðan tíma. Ég er á því að forstjórarnir (ekki peðin þeirra) eigi að taka pokann sinn hvar sem þeir eru og láta loka sig inni og skammast sín. Þórólfur Árnason borgarstjóri var bara peð í leik forstjóranna, hann var markaðsstjóri. Mér finnst mjög skrýtið hvernig aðförin er að honum í pólitík og í fréttum, litast mikið af gagnrýni sjálfstæðismanna. Auðvitað gerði hann bommertur en hann gerði þær í krafti skipana yfirmanna sinna og því gat hann annað hvort tekið þátt í þessu eða tekið pokann sinn.
Mín skoðun í stuttu máli er þessi: Þórólfur á að segja af sér og verður hann meiri maður fyrir vikið og þá líklegt að hann verði eftirsóttur starfskraftur. Ef hann hins vegar þrjóskast við og heldur áfram má búast við því að málið verði enn ljótara gagnvart honum. En ef hann segir af sér þá falla ljótu málin í skuggann fyrir afsögninni.
Ég hef því miður ekki lesið skýrslu samkeppnisstofnunar enda er hún 966 blaðsíður og ég nenni ekki að lesa þann bálk. En ég á PDF af henni og mun einhvern tíman glugga í hana í góóóóðu tómi.
Sem sagt ég stend með Þórólfi en hann á samt að segja af sér til að lægja öldurnar.