— GESTAPÓ —
Rasspabbi
Fastagestur.
Saga - 3/11/03
Átök á Jólanótt

Verði á konfekti haldið uppi með því að hafa takmarkað magn til sölu - átfíklar æfir og ganga berserksgang

Lögeglan stöðvaði áhlaup 15 átfíkla á verksmiðju Nóa Siríus uppi á Höfða á Jólanótt. hlupu þeir í óðagoti á rammgerðar hurðir fyrirtækisins..

Gerðu hinir soltnu aðsúg að lögreglu og þurfti hún að beita táragassprengjum á trylltan múginn til að gera þá óvíga.
Einn lögreglumaður slasaðist talsvert þegar einn hinna soltnu og brjáluðu beit hann í hægri upphandlegg og reif stærðarinnar stykki úr handleggnum með berum kjaftinum.
Við skýrslutöku gaf hinn soltni þær útskýringar að hann hefði séð súkkulaðislettu á einkennisbúning lögreglumannsins. ,,..ég bara réð ekki við mig, svo einfalt er það. Ég á við smá vandamál að etja þegar kemur að súkkulaði og hef vottorð frá lækni upp á það". Sagði fíkillinn og var vitaskuld sleppt að loknum yfirheyrslum þar sem maðurinn er greinilega veikur en ekki hættulegur. Lögreglumaðurinn verður hinsvegar skammaður rækilega fyrir að vera í skítugum einkennisbúnin og fær engann ís á spítalanum samkvæmt fyrirmælum Lögreglustjórans í Reykjavík: ,,Hann á bara að skammast sín fyrir að vera subba - og það á sjálfum jólunum!" sagði stjórinn í símaviðtali áður en fréttin var send út.

Hann biður átfíkla þó um að sýna stillingu og slappa af yfir jólin.

   (9 af 17)  
3/11/03 02:01

Dillinger

Var þetta nokkuð Feiti Einbúinn, klúðraði hann átakinu.

3/11/03 02:01

Rasspabbi

Lögreglan gaf engin nöfn upp.
Þetta hljómar samt eins og verk þess Feita...

3/11/03 02:01

Dillinger

En hérna er dagsleyfið ekki búið, eða ertu ekki búinn að sofa neitt.

3/11/03 02:01

plebbin

það er feita einbúa lykt af þessu

Rasspabbi:
  • Fæðing hér: 31/1/04 14:34
  • Síðast á ferli: 12/11/15 12:13
  • Innlegg: 239
Eðli:
Rassfaðirinn er hinn vænsti karl og er ekkert klúr.
Fræðasvið:
Einkar ófróður um það sem fróðlegt þykir en þeim mun fróðari um ófróðlega hluti.Sem sagt, ófróður fræðamaður.
Æviágrip:
Ævin hófst líkt og hjá hverjum örðum ómerkilegum Íslending, með öskrum og látum.Skrölt í gegnum skóla af mis miklum áhuga og angur frá eldri nemendum. Ekki má þó kalla Rasspabba tossa eða letningja því hann er þokkalegur þegar hann vill og nennirNú til dags heldur Rasspabbi sig gjarnan í nánd við lítinn flugvöll á einum af mörgum útnárum Íslands.