Lögreglan telur sig vera komin á slóð ræningja sem hafi framkvæmt eitthvert djöfullegasta bankarán íslandssögunnar.
Um er að ræða hóp manna sem kallar sig Bjarna-bófarnir eftir forsprakka hópsins Bjarna Ármannssyni bankastjóra, en hinir félagarnir í hópnum eru einmitt líka bankastjórar. Hafa þeir framið urmul smárra rána síðastliðin ár, fórnarlömbin hafa verið stór og smá, jafnt feitir kettir sem magrar mýs.
Lögreglunni reiknast til að samanlögð upphæð ránanna sé að nálgast 25 milljarða, Gunnlaugur Kvartan rannsókarlögreglumaður sagðist halda að fljótt gangi fyrir sig að upplýsa málið og fólk megi eiga von á að fá peningana sína aftur fljótlega eftir mánaðamót, rétt um 100.000 kr á hvern Íslending. Gunnlaugur kýs að kalla ránin Bankaránin ógurlegu.
Ég mana þig til að nefna það við hann að hann minni okkur á miðaldra konu, sem er örlítið í holdum og vinnur hjá hjálpræðishernum. Sá verður glaður.
[Ljómar upp einungis við tilhugsunina]
Já, þetta er áhyggjuefni. Það er orðið ansi langt síðan hún sást hér síðast. Vonandi hefur hún ekki verið seld í ánauð engillinn.
Vertu sæl Ormlaug mín, ég mun sakna þín í laumi.
-XXX
Hjer er laumupúkaþráður og oss eigi tilkynnt opinberlega um það ?! Skál fyrir alvöru laumupúkum ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Nei, yður var tilkynnt afar óopinberlega um það. [Flissar ógurlega eins og smástelpa] Skál!