Siðferði þjóðarinnar hefur hrakað svo mikið að undaförnu, að senn verður að grípa til róttækra ráðstafana eigi samfélagið að bjargast frá yfirvofandi glötun.
Ég vil að á Íslandi verði komið á laggirnar klerkaveldi og heilög ritning Gamla testamentisins gerð að lögum. Þjóðhöfðinginn mun kallast æðsti klerkur og biskuparáð kemur næst honum. Prestar fara svo með stjórn landsins, hver í sinni sókn og mun vald þeirra verða algjört.
Þetta er eina færa leiðin til að sigrast á kynvillu, græðgi, drykkjuskap, klámi, silungum, lauslæti, kommúnisma og öðrum löstum sem nú tröllríða samfélaginu.
Guð veri með ykkur.
Æðsti klerkur
Haraldur Austmann að gagnrýna hrakandi siðferði þjóðarinnar...!
Er það ekki svipað og Mörður Árnason færi að saka fólk um leiðindi eða Jón Ásgeir að amast við spillingu?
Ég hef sjálfur verulegar áhyggjur af þessu lastabæli sem okkar fagra land er að verða. Það er ekki eingöngu unga fólkið sem er ofurselt allskonar eitursulli sem ég kann ekki að nefna.
Nej min kära ven! það gengur fjöllunum hærra að viðbjóðurinn nái inn á elliheimilin og sumstaðar mun hreinlega ríkja neiðarástand vegna kynlífs og eiturfíknar aldraðra. Heyrst hefur jafnvel um dauðsföll af völdum ósómans.
Ég styð þig heilshugar séra Austmann í baráttunni gegn þessum drottins óvinum.
Hallelúja! Dýrð sé ykkur drottni. Amen!
Vímus.
Þurfum við ekki að sigrast á hryðjuverkastarfsemi? Er það ekki efst á forganslistanum? Mun þessi tilhögun hjálpa okkur í þeim efnum?
Ég er nú ekkert sérlega spennt fyrir þessum hugmyndum og þykir Haraldur kasta steinum úr glerhúsi.
Austmann er bara að fara á hausinn eina ferðina enn. Er að brenna inni með tíu þúsund bænateppi frá einhverri barnaþrælaverksmiðju í Atlasfjöllunum. Síðasta ár rauk bleyjuverksmiðjan hans. Það nýjasta hjá honum er víst að líma saman steina, mála á þá eyru og varir, líma á ullarlafð og selja ferðamönnum.
Sem háttsettur fjelagi í Hreintrúarflokki Baggalútíu (er m.a.s. var stofnaður af Haraldi Austmann) erum vjer algjörlega sammála. Skál ! [Sýpur á fagurbláu messuvíni].