Innskráningardraugurinn herjaði á mig og þóttist ekki kannast við svipinn á mér, sama hversu ég ólmaðist á lyklaborðinu.
Nú loksins eftir óralanga bið hefur mér verið hleypt inn á þessar síður aftur. Mér hefur verið úthýst í marga mánuði og ég er persónulega mjög fúll yfir því að Gestapó skuli láta svona við mig, en jafnframt glaður að vera kominn aftur og vona að mér verði ekki hent út jafnharðan
Velkominn til byggða. Öryggisgæslan hefur verið hert vegna þess að óvinir ríkisins sitja við allar smugur landamærana og bíða eftir smugum til að laumast inn. Vertu bara ekkert að þvælast útfyrir first þú ert á annaðborð kominn innfyrir. Þú gætir lenta aftur í vandræðum á landamærunum.