Maður bregður sér frá í nokkra daga og allt hefur umturnast á meðan.
Hvað í rauðglóandi rifbeinsmerg eru menn að meina með myndum í æviágripi sínu? Ég hef greinilega verið of lengi í fríinu mínu. Er verið að mynda einhverskonar virðingarþrep með þessum myndum eða hvað kemur til?
Ef svo er þá heimta ég mynd líka.
Ætli þú fáir ekki mynd á endanum. Enter er bara kominn niður að 11. sæti á heimavarnarlistanum.
Myndirnar voru flestar teknar í leynilegu boði hjá ritstjórn. Ég man ekki eftir þér þar, kolfinnur minn.
Hei, hei! hvað er að gerast, ræktanlega yfirvaraskeggið farið. Ritstjórnin hefur rakað Kolfinn.
Þetta er vissulega góð viðbót og nauðsynlegt til að aðgreina topp meðlimina frá hinum sem lægra eru settir.