— GESTAPÓ —
Júlía
Nýgræðingur og  skriffinnur.
Dagbók - 1/12/03
Hróplegt óréttlæti!

Efasemdir um reikniskunnáttur Ritstjórnar

Hvernig má það vera að birtar greinar í flokknum Félagsrit eru einskis metnar? Síðustu daga hef ég unnið kappsamlega að því að komast á lista yfir 50 virkustu heimavarnarliðana, en frétti svo að félagsrit telji þar alls ekki. Þetta tel ég fáránleg - og fáheyrð - vinnubrögð. Pistlingar og gagnrýni ættu að vega tvöfalt, ef ekki meira. Kunna ritstjórnarmeðlimir ekki að reikna?

Ég gefst ekki upp - ég skal komast á topp 50 áður en vikan er á enda. Gildir einu þótt ég verði að fórna starfsheiðri mínum og æru.

   (53 af 59)  
Júlía:
  • Fæðing hér: 1/11/03 17:16
  • Síðast á ferli: 22/5/06 23:57
  • Innlegg: 0
Fræðasvið:
Matarmenning.
Æviágrip:
Líf mitt er eins og lokuð bók. Hins vegar neyðist ég til að segja eitthvað vilji ég halda aukamyndinni minni inni.
Þetta fallega hálsmen fékk ég t.d. í sumargjöf 1997. Annað þarf fólk ekki að vita.