Grábölvuđ kvenkindin snúin aftur
Nei, nú er ég búinn ađ fá yfir mig nóg. Ţessi kerling sem hefur einhvernveginn komist upp međ ţađ ađ búa í kjallara alţingishússins í fleiri tugi ára er byrjuđ ađ ásćkja mig aftur. Hún gortar sig af einhverjum djöfuls sigri yfir mér.
Nei, ég er búinn ađ fá nóg af ţessari endaleysu, ţessum djöfuls hrćrigraut innantómra orđa ómenntađs öskurapa!
Ég bara vildi ađ kerlingin sú arna fćri aftur til Brazilíu međ sitt hugsunarlausa kjaftaglamur og mótsagnir.
Ţessi kona hefur í gegnum ćvi sína tekiđ ţátt í flestöllum borgarastyrjöldum veraldar frá upphafi síđustu aldar. Ástćđur fyrir ţví eru ókunnar en ég held ađ ţetta sé einskonar bardagafíkn. Hún situr niđri í kjallara Alţingishússins allan liđlangan daginn í ţeirri trú ađ hún stjórni Íslandi međ ógnarstjórn, síćpandi einhver skrattans ókvćđisorđ gegn Mussolini og alţingismönnum Íslenzku ţjóđarinnar.
Sigur hennar yfir mér fólst einfaldlega í einföldum orđaleik.
Hér međ lýsi ég sjálfan mig svarinn fjandmann Fröken Fix, hvort sem ţađ er á himnum, í helvíti eđa í kjallara Alţingishússins... ţessi útsendari kvalasjúkra einrćđisherra međ ekkert annađ ađ markmiđi en ađ veitast ađ ljóshćrđum forsetum. Spyrjiđ bara Vigdísi!