Bókin The boy who kicked pigs e. Tom Baker
Bókin fjallar í stuttu máli um Robert Caligari, afar illskeyttan ungan dreng sem er mannhatari og hefur gaman af því að sparka í svín og þegar engin eru svínin þá sparkar hann bara í sparigrísi, svínakótilettur og beikon. Eftir að hann lendir í hræðilegu beikonsamlokutengdu slysi þá snúast hlutirnir til verri vegar...
Bókin lítur út fyrir að vera barnabók, hún er þunn og ríkulega myndskreytt (það eru myndir á annarri hverri blaðsíðu, oft mjög fyndnar) og afar fljótlesin. En efnið sjálft og hvernig höfundurinn tekur á því er ekkert fyrir börn, a.m.k. ekki undir fermingaraldri. Sjálfri fannst mér oft erfitt að lesa bókina og sjaldan á ævinni hefur ein bók skilið mig eftir jafn orðlausa og sjokkeraða.
Þetta er nú ekki merkileg gagnrýni og lítið hægt að rekja söguþráðinn í svona stuttri bók en mig langaði bara til að vekja athygli fólks á þessari bók, hún gefur manni skemmtilegan viðbjóðshroll auk þess að vera fyndin og hvað er skemmtilegra en það?
Var hann mannhatari? Er ekki nær að segja að hann hafi verið svínahatari? Góð og gagnorð gagnrýni annars.
Nei, í rauninni hatar hann mannfólkið meira en nokkuð annað, svínasparkið er meira svona óútskýrð árátta. Get varla sagt meira nema kjafta frá söguþræðinum.... ekki vill maður nú gera það.
Mér líst vel á þessa bók... finnst hún í bókasöfnum eða bókabúðum hér á landi eða verður maður að panta hana að utan?
Ég fékk hana á Borgarbókasafninu... en það þýðir nú ekki að rjúka þangað strax, ég er ekki búin að skila henni...