Sæl aftur. blæs úr nös Ég lenti í þeirri ansans óheppni að vera að að eeh...lesa bók...í dýpstu dýflissu Nefndarmálaráðuneytisins þegar allt hrundi fyrir tveimur árum og lokaðist ég þannig inni rúmum tveimur kílómetrum undir yfirborði jarðar. Sem betur fer var ég ekki langt frá nefndafundabirgðastöð ráðuneytisins og gat því dregið fram lífið á eins miklu af niðursoðnum kleinum og eðalvínum og ég gat í mig látið. bendir á kleinulaga bumbuna Núna hefur Nefndarmálaráðuneytiskastalinn verið endurbyggður og námuverkamenn fundu mig blessunarlega hallelújah. Ég er því heimtur úr helju og upprisinn. En jæja, hef ég misst af einhverju?
fer út í haustveðrið en snýr aftur eftir tvær mínútur og ákveður að nýjar kleinur og eðalvín séu klárlega það sem hann ætli að fá sér í kvöld
Nei? Reyndar var eina dægradvöl mín þarna niðri sjónvarp sem náði eingöngu útsendingum Omega og því var það ætíð stillt í botn og engin önnur hljóð því heyrileg hallelújah
Ég vil benda þér þá á að þetta góða veður sem leikur við oss er í boði Veðurfarsstofnunar Baggalútíska Heimsveldisins og hef ég ákveðið að hafa Veðurvjelina stillta á SÍÐSUMAR a.m.k. fram að helgi.
Ég var einmitt að tala við frænda minn sem býr í Heljarhreppi og hann sagði sauðféð þar hafa komið afar feitt og syndugt undan sumri. Auk þess voru margir syndaselir veiddir í sumar á skerunum í Helvítisfirði. Mjög gott alltsaman.
Vjer bjóðum yður velkominn til baka og biðjumst afsökunar á skriðdrekanum sem sprakk, það var nefnilega fyrir örlítinn misskilning talið að óvinir ríkisins hefðu hann á sínu valdi.
Stofnuðuð þjer ekki einhverjar nýjar nefndir yður til dægrastyttingar meðan þjer voruð fastir neðanjarðar ?
Jú biddu fyrir þér Vlad. Ég byrjaði á því að tengja saman allar nefndir stjórnkerfisins í nýtt hringlaga kerfi þar sem hver og ein er yfir einni og undir annarri nefnd án þess að málaflokkar þeirra eða valdsvið tengist á nokkurn hátt. Þegar það var komið var leikur einn að stofna nýjar nefndir hér og þar til að mæta kröfum ráðuneytisins um gæði og afköst og til að halda við stöðugum vexti hins opinbera kerfis. Hinu nýja kerfi hefur verið ýtt úr vör og lauslega reiknað mun það skapa um 7300 ný störf á hverju ári, og eru þá ekki reiknuð með áhrifin á kaffi-, kleinu- og koníakiðnaðinn.