Fór á Spædermann og líkaði vel.
Greinilegt að ég var miðpunktur allrar athyglinar á þessari mynd og hafði lostafulli líkami minn góð áhrif á þessa mynd. Sem var annars mjög góð af því að ég leit svo vel út. Varðandi framhald að þá sá ég tvennt sem kemur til greina. Í fyrsta lagi
er greinilegt framhald og í öðru lagi sá ég mögulegt framhald af framhaldi.
En það er bara vegna þess að ég þekki sögu köngulóarmannsins og þess vegna sá ég í raun fram á annað framhald af næstu mynd. En svo er það náttúrulega spurning hvort að þeir muni nýta sér þessa tvo hluti í eina mynd í stað tveggja.
Ég er frábær og fæ ég því fullt hús í einkunn.