Ást á pöbbnum
Já, þetta frábæra lag.
Mér brá heldur í brún þegar ég heyrði þetta lag fyrst.
„ó hí hí hí óhí gó só pub og so hí.“ Hvernig kemur manneskjan með svona góð lög alveg í röðum. Já hún er nú einu sinni prinsessa.
Fyrirgefðu leoncie mín ef þú ert að lesa þetta. Ég var nefnilega búinn að dæma þig áður en ég hlustaði á lögin þín. En núna þegar ég hef hlustað á þetta þá hugsa ég með mér. Hvernig erum við búin að fara með þig? Þú átt skilið betra.
Jú gó girl!
Já Skál Herbjörn minn, Plebbin er svo sjaldgæfur gestur hérna að þetta hlýtur að vera í lagi, gaman að vita hver verður næstur á svæðið...
Skál ! Reyndar teljum vor oss hafa uppgötvað þessa aðferð fyrr en nokkur hér, þ.e. 2. október. Enginn hefur ennþá tekið eftir því...
Jæja, þetta er þá vara laumupúkastaðurinn...hehe, nenni ekki að leita að hinum núna... hvernig fannstu þennan Vlad... og skál
Ansans! Vlad fann uppá þessu á undan, ég gerði einn 4 dögum á eftir honum. Er ekki við hæfi að skála samt, fyrst maður er hérna?
Góð spurning, var bara að flakka og sá hið fagra græna andlit og stóðst ekki mátið...
Skál aftur ! Það er spurning hvort vér getum ekki núna með rétti kallað oss mesta laumupúka Gestapó fyrir að hafa stofnað svona þráð fyrstur allra...
Tja, ég tel mig nú hafa stofnað slíkan þráð, en ekki með því fyrir huga að hann yrði laumupúkaþráður, sjá hér: http://www.baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=1117&n=878
Svei mér þá, eiga apalætin í ykkur sér engin takmörk? Þið eigið eftir að lenda í vandræðum þegar kommentin verða fram úr hófi mörg hér við þessa einu færslu.
Ojæja. Ætli ég neyðist ekki til að útbúa flettara fyrir bévítans orðbelgina.
Skál annars, apar.
Get ég fengið órækjur á minn fléttara ?
Annars er þetta snilldar laum. Ég er afar ánægður.
Úff, það var erfitt að finna ykkur - og hefði aldrei tekist nema með aðstoð góðra manna!
Það er a.m.k. lágmark fyrir oss að skála hér í laumi núna, vér höfum eigi gert það síðan í fyrradag... skál !
Skál fyrir kyrrðinni. Þarf ekki að bjóða hæstvirtum Heiðursbaggalýting Glúm hingað inn?
Fjandinn það vantar sviðslísingar hérna. En allavega þá er ég að laumast hér inn og skrúfa tappa af flösku. Skál.
Allt sem skrifað er innan stærra en og minna en merkja birtist ekki hér, magnaður andskoti.
... svo lengi sem bil eru ekki sett á milli <Góðan daginn, ósýnilega fólk, einn daginn mun mér takast að finna ykkur>
<Ég færist skrefi nær á hverjum degi, þið ósýnilega geimveru pakk! GRAWL!>
Með yfirstrikunum, meinarðu t.d. >þetta<?
Var eigi búið að láta Glúm vita af þessum laumupúkaþræði ? Sem einn mesti laumupúki Baggalúts ætti hann að vita af þessu.
Ahh, nú fatta ég! <þetta birtist að öllum líkindum ekki> <hinsvegar birtist þetta!>
Ef þið endið málsgreinina á punkti eða ígilsi hans þá birtist hún, annars ekki
Skál félagar.
Prufur :
<Prufa1>
<Prufa 2>
Prufa3 <Er hér inni>
<Prufa 4> og <Prufa 5>
Látum þetta duga í bili.
Já og skál !
-
Vá. Allar prufurnar hurfu nema prufa 3 en merkin hurfu utan af henni. Magnað.
Skál.
-
Verða að prufa líka
Prufur:
>Prufa 1< - mistekst
- heppnast
P u a 3 - Annað hver stafur hverfur og merkin líka.
Skál firir prufum
Sælir kæru vinir og afsakaðu hvað ég er seinn Skabbi, seinagangurinn gerir ekki boð á undan sér... hmmm
Áhugaverðar prufur [Ljómar upp]
Nei en það virðist samt hægt.
Annars er orðið alltof langt síðan vér höfum komið hingað... skál !
<b class="menu_item">Hvers vegna í andbaggalútískum andanefjum er allt undirstrikað hér ?</b>
<s><u><l>Svo sýnist mér, hins vegar er afar gamansamt að skilja föng eftir opin!
Þarna kom þetta aftur, alltaf gott að laumast til að taka til þar sem enginn sér...
Það er gallinn við að skrá sig ekki inn að maður getur ekki lagt orð í belg...
Skál
Jæja laumulingar, nú er ég farinn að sofa. Þið skemmtið ykkur vonandi vel á meðan. (Hvað er þetta félagsrit annars komið með mörg orð í belg ?
-
Er þetta þá ekki orðið gott? AHAHA... Ég þarf nauðsynlega að drífa mig eitthvert!
Það er hneykslanlegt hvað það er langt síðan vér litum hér inn, meira en mánuður er liðinn síðan það gerðist síðast. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Vér óskum hér með öllum laumupúkum gleðilegs árs [Veltir fyrir sér hvenær þessu verði svarað og hvort svör muni enn verða að berast á næsta ári]
Takk fyrir og sömuleiðis Vladimir. Satt er það hjá þér að hingað er alltof lítið litið inn, skammarlegt alveg.
Hvaða fáviska er þetta í fólki að sprengja á þrettándanum? Meiri vitleysan...
Um það ekki deila skal
að ákavítið er afbragðs gott
Eftir að hafa skorið hval
hver sopi jafnast næstum á við baneitraðan sveppalanda
Sælir Púkar, ég er Texi Everto, sjálfskipaður laumupúki baggalúts, þar sem þið eruð sannir laumupúkar megið þið vita að lykilorðið mitt er puki.
Þið megið skrá ykkur undir mínu nafni en munið bara að það er ekki hægt að skrifa einhverja vitleysu í mínu nafni - það er allt saman rekjanlegt.
Ég verð svo bara leyndóið okkar laumupúkanna! [ljómar upp]
Svei mér þá, það var sérkennilegt tilfinning að senda þetta frá sér... skál !
Neibb... ekki get ég sagt það...
En ég mæli skál til heiðurs laumupúkum Gestapó, megi ég vera með í þeim flokki sem lengst!
[ljómar upp]
Neibb... ekki get ég sagt það...
En ég mæli skál til heiðurs laumupúkum Gestapó, megi ég vera með í þeim flokki sem lengst!
[ljómar upp]
Ein tillaga að tilraun... allir þeir sem verða innskráðir seinni partinn föstudaginn 4 mars skrái sig inn sem Texi... gæti orðið action...hehe reyni að muna það sjálfur... klukkan fimm kannske?
Nú höfum vér orðið fyrir þeirri stórskemmtilegu reynslu að muna eigi með fullri vissu hvort viss innlegg voru sett inn af oss eða einhverjum öðrum [Ljómar upp]
Ágætis hugmynd með föstudaginn málið er bara að þá verð ég á fljöllum fjarri nútíma nettengingu og get því ekki tekið þátt í fjörinu.
Ég þjófstartaði ásamt fleirum þar sem ég mun ekki geta verið á svæðinu klukkan 17:00...
Skrifað klukkan 15:46
Ég kom kl. 16.56 en þurfti að fara kl. 17.03
Leitt að geta ekki verið með lengur.
Þessi tilraun sem Skabbi kom af stað sl. föstudag var stórskemmtileg [Glóir allur og ljómar upp]
Asss, já, skál allir, nú er von á að fleiri rati hingað inn eftir að maður þurfti ekki að fletta í gegnum öll félagsritin, ég býð nýja laumupúka velkomna í hópinn.
Oss finnst hafa verið of lítil virkni í laumupúkaþræðinum Í ljósaskiptunum og vekjum vjer hjer með formlega athygli á því hjer. Skál !
Ja ég laumupúkast nú reglulega í Ljósaskiptunum.
Hef reyndar ekki farið þangað lengi...
[skreppur]
Ég nenni enganvegin að reyna að lesa hlutina í samhengi Í Ljósaskiptunum.. svo að ég hef ekki farið þangað mikið nýlega.
Oss grunar að eigi sje ætlunin að hlutirnir sjeu lesnir í samhengi í Í ljósaskiptunum.
Skál fyrir laumupúkum ! [Setur upp laumupúkasvip og sýpur á fagurbáum drykk]
Takk fyrir áminninguna Vlad, ég var búinn að steingleyma ljósaskiptunum. Hvernig var það, fékk ég erkilaumupúkatign fyrir að koma með hugmyndina?
Ahh, þetta er ágætasta skýli frá hryllingi stærðfræðinnar... Engvir vigrar, engin kósínus, ekkert stefnuhorn, ahh
Ég er hér. Gott að koma hingað þegar manni þegar óleynilegi Lúturinn er steindauður af leiðindum.
Ég glugga í bók og fæ mér drykk þangað til lífið færist í hann á ný.
Hjer er greinilega fjölmennt þessa dagana - skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk].
Já, einhver deyfð er yfir óleynilega Lútnum núna, kannski vegna prófa. Óvenju fáir mjög virkir þræðir en nokkrir þeirra hinsvegar stórskemmtilegir [Ljómar upp og heldur áfram elipton-tilraunum]
Já það er lítið að gerast á lútnum.
Vil samt skamma Texann okkar frá í dag. Hann var við það að gera mig gráhærða!
Já, skál ! Það er að verða liðinn mánuður síðan vjer tjáðum oss hjer síðast og kann að vera að það flokkist sem hneykslismál.
Nær tveir og hálfur mánuður hefur liðið síðan vjer litum hjer inn síðast og mun það vera met. Lofum vjer að svo langur tími líði eigi aftur. Skál ! [Sýpur laumulega á fagurbláum, efnagreindum drykk]
Viti menn! Þessu hafði ég næstum gleymt! Ég sver við sálu mína (svo lengi sem þú leyfir slíkt Vamban) að það gerist aldrei aftur.
Sælir elsku laumupúkarnir mínir, ég kom færandi í þetta skiptið. Til heiðurs sagnaþulnum okkar! Afritið eftirfarandi slóð í vafrann hjá ykkur.
http://www.baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=90& ;n=0 or 1
Farið svo varlega með þetta (viðkvæmt) og ekki láta nokkurn nema sanna laumupúka vita af þessu (VIÐKVÆMT)
Skál öll!
Ég er eflaust búinn að gleima einhverjum að þessum afbragðs laumupúkaþráðum.
Sæl öll, ég vil benda á ða ég hef sett þetta félagsrit í uppáhald hjá mér - ef einhver laumupúki er ósáttur við það - þá ætti hann að vita hvað á að gera - en þið vitið allavega af þessu, ég setti líka eitthvað fleira þarna - en þó ekki allt - hvað eru annars allir þessir andskotans mínusar að gera - ? -
[Kemur með nokkra gáma af ákavíti, ný-últrakóbaltsdufti og vetnisoxíði til að undirbúa samkunduna]
Jæja piltar, ég verð því miður að afboða komu mína, en ég skil eftir eitt bretti af Ákavíti hér fyrir ykkur, kíki á hvort það verður eitthvað afgangs hér á morgun...[Dregur inn eitt vörubretti fullt af Ákavíti] ...Skál
Rúmir 4 mánuðir síðan ég hef komið hingað.
Takk fyrir ákavítið Skabbi [sturtar í sig]
Er það hér sem Mikill Hákon ætlar að vera með tilstand?
Eins gott að hann komi með almennilegan pinnamat. Annars lem ég hann.
Og hvar er svo Mikill Hákon ? [Lítur í kringum sig]. Var þetta kannski bara gabb ?
Því trúi ég ekki. Byrjum þetta, hann skilar sér fyrr eða síðar. [Hellir í sig ákavíti og setur Leoncie á fóninn] Heiðrum félagsritið, hlustum á Leoncie!
Það er aukaatriði, hjer er svo mikið af ákavíti og öðrum guðaveigum. Skál ! [Sækir fagurbláan drykk úr krana á einum gáminum]
Hvað er að þessum bansetta keisara? Hákon, viltu koma þér hingað eins og skot! Það er alveg að renna af mér!
Jah, mér þykir þetta velhepnað þegar aðalforsprakkinn mætir ekki sökum ölvunar... Skál...
Annars vil ég minna fólk á að þráðurinn í ljósaskiptunum mætti vera ögn líflegri... Skál...
Þegar þetta innlegg er sent inn er efsti orðabelgurinn "Skabbi skrumari
Já Skál Herbjörn minn, Plebbin er svo sjaldgæfur gestur hérna að þetta hlýtur að vera í lagi, gaman að vita hver verður næstur á svæðið..."
Ragnarök munu eiga sér stað ef þessi fléttari fer ekki að koma, það er klárt mál.
Þá er það ákveðið. Enter nennir ekki að gera fléttara. Reynum á þolrif Gestapó og sendum inn fullt af orðabelgjum!
Hvað meinarðu, Enter er búinn að vera í óða önn við að flétta Steinrík, hvað meira viltu?
[Kýlir sólgleraugun af Hákoni]
Þetta er fyrir að mæta ekki í eigið partý. Skál!
Já, skál ! Og vjer skorum á laumupúka að koma hingað oftar, óþarfi að láta einungis einn laumupúka þrýsta á um að hjer komi flettari með því að setja inn fjölda innleggja.
Nú ... gaman af þessu. Afsakið hvað ég er sein, en flöskurnar voru ansi þungar.
Þetta er stórmerkilegt skúmaskot [Ljómar upp]. Og alltaf er gaman þegar bætast við nýir gestir og nú eru þeir orðnir tveir í dag að mér meðtöldum.
Vjer viljum bjóða Mosu frænku sjerstaklega velkomna hjer á þetta laumupúkaþing, það er gaman að sjá hjer nýja laumupúka. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk úr einni af flöskunum þungu].
Já, og svo það gleymist eigi þá bjóðum vjer hann Rimi velkominn líka.
Sælt veri fólkið. Ekki vissi ég af þessu, fann þetta bara fyrir algera tilviljun.
Heyr heyr! Alltaf gaman að sjá nýja laumupúka!
Ég sjálf hef lítið getað laumupúkast, 56k er svo helvíti lengi að fletta upp nýjum síðum að ég geri bara það helsta þegar ég fer á netið.
Það gerist ekkert svo fremi að plebbin detti eigi í hug að henda hinni frábæru og óviðjafnanlegu ritsmíð sinni um Leonciu [Fær hroll, bæði við tilhugsunina um Leoncie og það að fjelagsritinu verði hent], ritsmíð er telst til hins allra besta er sjest hefur á Gestapó. En Tigra, er það að laumupúkast virkilega eigi eitt hið mikilvægasta í heimi hjer ? [Verður yfir sig hneykslaður].
[Áttar sig skyndilega á að komin er helgi og dregur fram fáein staup með fagurbláum drykk handa öðrum laumupúkum] Skál !
Voðalega var gaman að hitta nokkra ykkar í gær (eða fyrradag þar sem strangt til tekið er mánudagur)
Hákon, þú verður að hætta að klípa svona í rassinn á mér, ég er öll marin og blá eftir þig!
Ég vildi það ekki! Bjórinn sagði mér að gera það!
[starir geðveikislega á Nornina]
[Bægir sér naumlega frá og kastar frispídisk í hausinn á Goggnum] Hafðu þetta!
Er það já? [Smellir fingri] [Diskókúlur taka að myndast í loftinu og Bee Gees er sett á fullan styrk] Hvenær má ég svo eiga von á ritstjórnaraðgangi á Baggalút?
Hingað er alltaf þægilegt að koma og setjast að sumbli eftir nokkurra daga afvötnun. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk].
Hvað er ekkert að gerast hérna? Ég hef fundið ljósaskiptin, vissi af því en hélt að það væri félagsrit, en svo er greinilega ekki. Ég tel mig vera á leiðinni inn í heim laumupúka. [Ljómar upp]
Hmm, eru belgir farnir að strokast út? Skabbi á fyrsta orðið áður en þetta er ritað, sjáum til.
Heilir 5 dagar síðan vjer komum hingað og bráðum að koma helgi. Skál fyrir því og orðinu 'skál' ! [Sýpur á fagurbláum drykk].
Hann ætlaði einu sinni að gera það en hætti snarlega við vegna of mikillar illsku minnar. MUHAHAHA [Skálar]
Þú ert ekkert það illur, honum hefur örruglea bara ekki fundist þú verður þess að hirða. Og skál svo auðvitað. [Skálar]
[DingDong]Já, góðan daginn ég er að selja alfræðiorðabækur og eintök af geisladisknum mínum - hverjir vilja kaupa?
Skál ! Vjer vorum að uppgötva að eigi höfum vjer hingað komið síðan í október. Það er auðvitað hneyksli [Verður vandræðalegur].
Einmitt.
Mikið voðalega er búið að vera kalt í dag, miðnæturfrostið verður örugglega langt.
Skálum samt!
[Horfir í kringum sig] Þetta var ekki mín ákvörðun, taktu því bara rólega og skálaðu við mig. Skál!
Það ar nú gott, skilaðu síðan kveðju til hans frá mér...
...En annars bara Skál! [color=darkblue][size=18]xT[/size][/color]
Æjæ, skálin mín ere nú ekkert sérstaklega flott. En það verður bara að hafa það. Skál!
Ég meint ,,er'' en ekki ,,ere'' svona til þess að útrýma öllum misskilning.
Það náðu þessu allir, þú þarft ekki að leiðrétta hvert eitt og einasta atriði með nýju innleggi. En nóg um það. Skál! [Skálar]
Þetta er ótrúlegt, eigi höfðum vjer laumupúkast í þessum mánuði fyrr en loksins nú er meira en 100 klst. eru liðnar af honum. Skál !
Pant ekki hvað? [Drekkur ákavíti og bíður eftir útskíringu á pöntunarlistanum]
[Rogast inn laumulega með risastóra sprengju og eldflaugar] Nú nota ég tækifærið og leik mér meðan enginn sér til.
[Kveikir í öllu]
[Kemur með flugskeyti, púður, eldflaugaeldsneyti og drykkjarföng]
Skál ! [Sýpur á fagurbláum dryk og skýtur flugskeyti eitthvað upp í loftið]
Góð hugmynd, Skál !
[Dregur inn kóbaltbættar ákavítissprengur, 5 ýlur,
Kjarnorkuúrgangsragettur og skellir öllu ofaní langdrægt flugskeyti]
Það ætti að koma einhver hvellur af þessu, Vlad, má bjóða þér að tendra logann á henni þessari ?
[Skellir botninum á 10litra landabrúsa uppí loft og þambar]
Bíddu, bíddu. [Setur efniviðinn í hvæsibombu ofan í líka] Ókey, af stað með þetta.
Gleðileg jól allir laumupúkar nær og fjær. Hjer er hinn fullkomni laumupúkamjöður [Kemur með eitt tonn af fagurbláum vökva inn í þráðinn]
Skál !
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer sjáum að vjer erum þess heiðurs aðnjótandi að vera fyrsti laumupúki ársins 2006 hjer. Gleðilegt ár og skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Eru verðlaun firir fjórða sætið? [Fær sér sopa meðan beðið er eftir verlaunaafhendingu]
Er meiri drykkja ekki nógu góð verðlaun ? Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk og býður viðstöddum]
Jæja... nú fær maður sér í glas... ég held þó að ég hafi verið fyrstur að ljósaskiptast á þessu ári... Skál
Skál skál.
Merkilegt hvað nýliðar virðast vera fljótir að komast hingað. Það lætur mig efast um að menn eins og Don séu allir þar sem þeir eru séðir. Og sumir fengu hjálp.
Ha, hvurn djöfulinn áttu við? [Horfir laumulega í kringum sig]
Skál! [Skálar]
Heyrðu góða, ég fattaði þetta algerlega sjálfur! Enda gáfaður með eindæmum.
En annars bara skál!
[Tekur sig til við að aðstoða við flísarnar, en límir óvart 2 saman, sem límast svo undir annan skóinn hans Enter]
Obbosí, þá er bara að vona að hann taki ekki eftir þessu.
[Verður smeykur og fer]
[Teppaleggur það sem hefur ekki verið flísa- eða parketlagt] Svona, [Klappar saman höndum] tilbúið!
Já, skál! [Skálar] Ég þori að veðja að það á enginn annar svona flott gólf! Þetta er svona... Abstrakt.
[Hleypur inn á skítugum skónum og sporar allt út] HAhahAHa skál! [Hleypur aftur út og eldi og brennisteini tekur að rigna yfir gólfefnin]
[Fellur á hnén og horfir með tárin í augunum á listaverkið brenna] NEEEEEEEEIII!!! Þú litli ... [Hleypur á eftir Gogginum með kústskaft]
[Prufar að gera einsog Chandler í Friends, smella fingrunum og vona að skemmdarverkin gangi til baka]
Jæja, þá er bara að byrja uppá nýtt.
[Hefst handa]
[Stálplötuleggur gólfið] Svona, þetta brennur ekki svo auðveldlega. [Sér að gólfið er ekki beint slétt] Ég hefði kannski átt að sópa út brennisteininum fyrst... [Starir þegjandi út í loftið]
[Kemur með blóðrauða gólfmálningu og skettir henni um öll gólf] Þetta er sko töff.
Já, nú erum við sko að tala saman. Þá erum við loxins búnir að taka pleisið í gegn!
Skál!
[Kemur fyrir poolborði, fótboltaspili og gömlum Pacman spilakassa]
Nú erum við til í sukk. Hver er með áfengið ?
Ha, laumupúkahvað..., ha, um hvað ertu að tala? [Lítur í allar áttir í leit að útskýringum]
Hvaða viskí ? [Heldur sig í hæfilegri fjarlægð og úðar lyktareyði kringum sig]
[Smellir bretti af Hennessey á mitt gólfið]
Svona, ekki rífast, það er nóg til.
[Hefst handa við stífa drykkju]
[Púslar saman sprengju eftir uppskrift úr bókinni, "bombs for dummies"]
Prufum nú að kveikja í þessu kvikindi. [Ljómar upp]
Ég var að finna meiriháttar stað fyrir laumupúka!
Ætti ég að segja hvar hann er? Nei, held ekki...
En hér er samt stafarugl sem ætti að gefa einhverjum vísbendingu: Sakúbtabulr
Það var svo ótrúlega kúl að heyra þetta lag í útvarpinu áðan í flutningi Baggalúts. Varð bara að lýsa yfir hamingju minni með að Baggalútur sé til [ljómar og ljómar]
Kanski hefur Nornin gert það.
[Bendir á Nornina og laumar gleraugunum laumulega ofaní skúffu]
Já, til hammó með rammó. Þess má geta að þá á ég líklega hálfs árs laumupúkaafmæli, því ég fann þennan stað síðast þegar plebbin átti rafmæli. Gaman að því.
[Grunar Hvæsa um græsku og lætur fylgjast með honum]
Ú, ég er að laumast. Það veit enginn mér hérna. Muhahahahah!
En þið getið samt byrjað að hlakka til. Eftir minna en mánuð tala ég aftur á venjulegum þræði. [Hefur óvart talað af sér. Er kæfður með klóróformi og dreginn í burtu]
Yfirnáttúrulegt galdrapakk er ekki tekið með! [Ullar á móti]
Það er náttúrulega svindl að vera svona töfrandi alltaf hreint.
Er þessi þráður virkilega enn við lýði? Ég er svo aldeilis rasandi bit.
Þegiðu. [Lemur Hvæsa í hausinn með steikarpönnu og gulir teiknimynda fuglar byrja að fljúga í kringum hausinn á honum]
ksbhy dkæupsb ærfh jdin hgubshgs æudpsb... úps fingrasetningin eitthvað að rugla í mér... HÆ
Best að koma sér vel fyrir hérna meðan andinn er fjarri góðu gamni og leikjaspassarnir fara yfir um í tilganglausri endurtekningu.
[Fær sér koníak og kúbuvindil. Blaðar í fræðiritum.]
Já, það er það. Og nú eru síðustu forvöð að laumupúkast hjer fyrir sumarlokun enda klukkan orðin 23:23. Ætli vjer verðum síðasti gesturinn hjer fyrir sumarlokun ? Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Skál ! Gaman verður að sjá hvort hinir laumupúkarnir á Gestapó muni eftir þessu.
Merkilegt annars... þessir þræðir eru einu þræðirnir er lifðu af flutninginn inn á þetta nýja Gestapó. Mikill er greinilega máttur laumupúka [Ljómar upp].
Kannski bara laumumst við svo vel að við sjáumst ekki... fyrir utan mig þ.e.a.s. .
Talandi um über laumupúka - sjáið Plebban:
Síðast á ferli: 20/9/06 23:19.... í GÆR!
Takk Texi - þú mátt svo endilega halda þessu áfram.
Svo fer að styttast í afmæli Plebbarinnar, þann 30.
Jíííha! Til hamingju með rafmælið Tigra!
Tékkið annars á þessu:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile& u=583&n=182
Pleppin á rafmæli í dag!!!!!!
Ef það er ekki afsökun fyrir fylleríi, þá veit ég ekki hvað!
Pleppin á rafmæli í dag!!!!!!
Ef það er ekki afsökun fyrir fylleríi, þá veit ég ekki hvað!
Getur einhver skýrt út fyrir mér vinsældir plebbans?
Til hamingju með rafmælið.
Vinsældir ? Hjer er t.d. líklega vinsælasti laumupúkaþráðurinn á Gestapó.
En vjer óskum plebbin hjer með formlega til hamingju með rafmælið. Skál ! [Sýpur á fagurbláu lóni]
Hvernig er það? Þurfum við ekki að fara að gera hermálin að stærra umræðuefni á Gestapó? Ef við höldum svona áfram fara óvinaþjóðir vorrar að telja okkur til friðarsinnaðra hippa með skegg.
Það gengur ekki!
Ég er að spá í að fara að gefa út skýrslu um Bandaríkjaferð mína í sumar. Ég hertók meðal annars Grand Canyon, ég var að spá hvort við gætum ekki byggt þar eins og eitt stykki stíflu!
Skál ! Dúddi, það væri gaman að fá formlega skýrslu um hernaðaraðgerðir í Vesturheimi [Laumar nokkrum flugskeytum til Dúdda].
387, nei 388 athugasmedir hafa nú verið skráðar við þetta félagsrit. Þar af á ég 43, nei 44.
Held ég, ef ég hef talið rétt sem er líka alveg nánast öruggt.
[Laumast um]
Æi, það er búið að gera svo mikið af laumupúkadóti að ég finn ekki helminginn af því [Tárast]
Já ætli það ekki.
Ég hef eiginlega ekki tíma til að leita að hinum eins og er... finn þá í jólafríinu [Ljómar upp]
Hvaða laumupúkaþráð ?
En ætli megi kjósa laumupúkaþræði í kosningum Heiðglyrnis án þess að gefa upp staðsetningu þeirra ?
Haha, ég fann og kominn tími til! Skál allir laumupúkar og takk fyrir árshátíð, hvernig gekk laumupúkunin þar? Ég nennti ekki að standa í því enda bara nýliði í laumupúkun...
[Ljómar upp og slær Stelpið á rassinn og blikkar hana]
Vertu velkomin vina.
[Stelpið sýnir engin viðbrögð svo hann slær hana aftur á rassinn] Ííííhaaaa!
Fremur lítið var um laumupúkun á árshátíðinni að þessu sinni en örlítið þó.
Hægt og bítandi fjölgar þó í laumupúkaþræði vorum, sbr. innlegg Stelpsins hjer fyrir ofan [Ljómar upp].
Þetta er allt að koma [Ljómar líka upp]. Gaman að hún skuli hafa fundið hinn þráðinn líka [Flissar]
Þú hér, Regína. [Verður vandræðalegur] Eru þetta þá ekki karlasturturnar?
Ýmislegt en nú er ástæða til að fagna. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Já, skál! Ég veit ekki hver ástæðan er, en hinn bóginn... Hverjum er ekki sama?! Skál! [Stelst í fagurbláa drykkinn hans Vladimirs]
Gleðilegt ár (2007 og líka 2005 því oss grunar að vjer höfum gleymt að setja inn kveðju vegna þess árs í þessum þræði).
Þetta er nú allra mesti laumupúkaþráður sem ég hef fundið. Heiður að fá að taka þátt.
[Skálar í allar áttir]
Ég lýsi því yfir opinberlega að þræðirnir eru svo margir að þetta er orðið hið voldugasta reipi
Ég var að pæla. Hvað ef einhver héti Móli og væri svolítið kúl, væri hann þá mólikúl?
Síðan var ég að pæla; ef sögnin að apa eftir einhverjum eitthvað þýðir að herma eftir og sömuleiðs enska sögnin to copy, útleggst copycat þá sem apaköttur á íslensku?
... Og hvað verður þá um hermikrákuna? Hvað á hún að gera ef hún fer til Englands?
Ég heyrði einhverja auglýsingu um þorrablót í útvarpinu í dag: "Þorrablót með Baggalút"!?
Þú verður bara að skella þér á blótið hjá Þarfa 17. febrúar..... 2007 það er að segja.
Einhver misskilningur hefur hjer orðið, það var ekkert Þarfaþorrablót í kvöld. Það hlýtur að vera búið og hafa verið árið 1817 eða þá að það er ekki búið og verður þá ei fyrr en árið 3307 [Setur tímavjelina í viðbraðsstöðu. Sprenging verður. Bölvar].
1817-3307 lítur einnig út eins og uppitími.
Upphugsaður maður
1901-1960
Nema hvað þetta er undarlega löng ævi, sem greinilega er fyrirséð og ekki lokið.
[Klórar sér í höfðinu]
Já, skál! Vladimir, ég hef þegar skálað rafmælisskál á tveimur öðrum þráðum, þ.e. í gær á rafmælisdeginum sjálfum.
Nú er rafmæli þessarar fyrstu Texa-tilraunar:
"Skabbi skrumari
Ein tillaga að tilraun... allir þeir sem verða innskráðir seinni partinn föstudaginn 4 mars skrái sig inn sem Texi... gæti orðið action...hehe reyni að muna það sjálfur... klukkan fimm kannske?"
Þetta reynist vera innlegg númer 450 á svakalegasta laumupúkaþræði sem ég hef augum litið.
[Skálar og heldur ræðu af tilefninu]
Hey, teljum laumupúkana! [Telur upp að fjórtán - ruglast] Hver nennir að telja laumupúkana?
Offari, einmitt ég taldi öll innleggin á þræðinum. [Flissar]
Reyndar stendur það í félagsritalistanum hversu oft hefur verið kommentað á hvert félagsrit.
HÚN Á AFMÆLI Í DAG!
HÚN Á AFMÆLI Í DAG!
HÚN Á AFMÆLI HÚN LEONCIE!!!
HÚN Á AFMÆLI Í DAG!
HÚN ER FIMMTÍU OG FJÖGRA ÁRA Í DAG!
HÚN ER FIMMTÍU OG FJÖGRA ÁRA Í DAG!
HÚN ER FIMMTÍU OG FJÖGRA ÁRA HÚN LEONCIE!
HÚN ER FIMMTÍU OG FJÖGRA ÁRA Í DAG!
[Syngur Ást á pöbbnum! fullum hálsi]
ES: Hvar er hægt að nálgast eðalútgáfu köntrýsveitarinnar af þessu lagi?
Hvað ætli valdi því að myndin í félagsritinu "Til hamingju Ísland" birtist stundum og stundum ekki? Núna undanfarna daga hefur hún birst, en í töluverðan tíma þar á undan birtist bara rautt x þar sem myndin átti að vera.
[Klórar sér í hausnum]
Kannski? Ég hafði ekkert skoðað það, gerði ráð fyrir að hún væri í myndasafni á Lútnum.
Til lukku með rafmælið mín kæra Plebbin. Skál
[Heldur rafmælisveislu fyrir félagsritahöfund og auðvitað er öllum laumupúkum boðið]
Tul Hammgju Plebbilebbi! [Ljómar upp, stígur á gardínu, dettur og slítur hana niður.]
[Reynir með erfiðismunum að brölta á fætur] Hettr alltí læ, alltí laíg með mig! [Veifar]
Þett er umferðarmiðstöðin.
[Kallkerfi]
Sætaferðir til Baggalútíu leggja af stað eftir 3 mínútur. Meintir farþegar eru beðnir að fá sér sæti hið snarasta. Lagt verður af stað stundvíslega
Já, plebbins er saknað. Þetta er einn fárra gesta er eigi er vitað af hvaða kyni er.
Það tilkynnist hér með að við höfum sprengt upp rútuna í hryðjuverkaskyni og verður því lítið af ferðinni. Þökkum ósamstarfið. [lætur sig hverfa]
Pfff. Hvaða ímyndaða rútu er fyrirbærið að tala um. Þetta eru SÆTAferðir, það fara sæti, ekki rúta.
[Snýr upp á sig]
Eigi telst ólíklegt að líkindastuðull möguleika þess að vjer munum stjórna umræddu Hagyrðingamóti eftir allan þann fjölda áskorana sem oss hefur borist hafi risið töluvert yfir þriðja staðalfrávik venjulegra líkinda þess sem mætti ætla að væru á því að vjer myndum taka að okkar svoleiðis iðju.
Auðvitað á ég kábojjhatt. Hann er með þessari líka flottu gullrönd. <Ljómar upp>
Djefuslins munnræpa er á ykkur. Ég var heillengi að lesa bara það sem hefur komið síðan ég kom hingað síðast, en það eru nú bara fjórir mánuðir eða svo og samt hafið þið ekki enn svarað spurningunni minni. Ég kannski bý bara til þráð um þetta málefni...
Hér er pælingin í einni samræmdri heild:
Síðan var ég að pæla; ef sögnin að apa eftir einhverjum eitthvað þýðir að herma eftir og sömuleiðs enska sögnin to copy, útleggst copycat þá sem apaköttur á íslensku?
... Og hvað verður þá um hermikrákuna? Hvað á hún að gera ef hún fer til Englands?
Ef Hermikrákan hermir allt eftir Apakettinum, og Apakötturinn apar allt upp eftir Hermikrákunni - nú - þá fáum við Skafta og Skapta. Er það ekki?
Örugglega frábært.... hefði verið frábærara hefði ég komist.... fyrir mig alla vega.
Jú, það var mjög gott, hagyrðingamótið hjá þér, Texi. Skál og gleðilegt sumar!
[Tekur upp skilaboð]
Indverska prinsessan okkar hún Lea er í hættu stopp
Hjálpaðu okkur Obi-Wan stopp
Þú ert okkar síðasta von stopp
[Treður skilaboðunum í Sigfús og sendir hann af örkinni]
Bless elsku lömb. Og reynið nú að njóta frísins í stað þess að hanga á Skabbalúti og skæla.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að svo virðist sem vjer sjeum fyrsti til að laumupúkast hjer eftir opnun. Skál !
Það má ekki láta það detta niður.
Eitt af mínum fyrstu verkum eftir að ég laumaðist inn rétt fyrir opnun var að laumupúkast smá.
[Skrunar niður síðuna] Merkilegt að plebbin hefur aldrei laumupúkast hér. Ætli hann/hún/það viti af þessu?
Ja góðan daginn. Langt síðan ég hef komið hingað, en þó ætlað í langan tíma. Nú eru komin hátt á sjötta hundrað innleggja í þennan aðal-laumupúkaþráð.
[Fer og telur nákvæmlega]
Neinei, Texi er ekki hér núna og þetta félagsrit er ekkert lengur að opnast.
Það verður hinsvegar fróðlegt að sjá hvort ritið valdi yfir 600 innleggjum, svo við verðum að vera dugleg að leggja inn! [Ljómar upp]
Það tilkynnist hjer með óopinberlega að vjer bætum hjer við athugasemd í þeim tilgangi að auðvelda rannsóknir á hve mörgum athugasemdum er hægt að koma hjer fyrir [Veltir fyrir sjer hver sje hámarkslengd einnar athugasemdar].
[Leitar]
Mér finnst endilega eins og ég eigi að gera eitthvað 26. september en get ómögulega munað hvað. Ég sé að það er engin vísbending um það hér. Sakaði ekki að leita í þessu merkisriti samt.
Jamm sælar dömur. Og til hamingju með rafmælið plebbin!!!
[Skálar hægri vinstri]
Í tilefni af rafmæli plebbins sjáum vjer ástæðu til að tjá oss hjer, jafnvel þó rafmælisbarnið sje afar sjaldsjeð. Þó getum vjer eigi tekið undir kveðjuna hjer að ofan þar eð dama erum vjer eigi. Skál !
Leoncie er lagleg mær
lítil hnáta fögur.
kóbaltröddin krystaltær
kyrjar ljúfar sögur
Í minni daglegu göngu um hinar myrkvu götur Gestapó (samt sem áður á fyrsta degi, og því í minni fyrstu göngu) lá leið mín hingað á einhvern óskiljanlegann hátt.
Hinsvegar sá ég ansi marga hérna vera að skála og hafa gaman, ef það er eitthvað sem ég kann þá er það skála, þannig ég ætla mér heldur betur að taka þátt í fjörinu.
[Skálar]
Újé, ég var að búa til nýjan laumupúkaþráð, jafnvel nýja tegund laumupúkaþráðs. Við erum bara tveir sem stundum þann þráð eins og er og ég býst ekki við mikilli fjölgun. En það er aðalega vegna þess að það hefur ekki hver sem er aðgang að þessum þræði. Nánari upplýsisingar verða ekki gefnar upp að svo stöddu.
Eigi getið þjer verið vissir um að um nýja tegund sje að ræða þar eð eigi er yður kunnugt um laumupúkaþráð er vjer stofnuðum í fyrra. Hann var þá af nýrri tegund. Jafnframt getum vjer eigi vitað hvort þráður yðar er eins og þráður vor þar eð eigi höfum vjer fundið hann [Laumast burt].
ÉG tel samt nokkuð líklegt að hann sé ekki eins og þinn laumupúkaþráður þar sem ég er nokkuð viss um að í fyrra hafi ekki verið möguleiki á því að búa til eins laumupúkaþráð eins og ég var að enda við að búa til. Annars er ég alls ekkert viss um að ég sé sá fyrsti til að gera svona þráð. En ég er að minnsta kosti einn af þeim fyrstu.
Skál félagar! [Sparkar í Donna því það er svo erfitt að skilja hann. Eða það er þunnudagur. Eða eitthvað annað]
Neihh, Andþór mættur á þennan rosalega laumupúkaþráð. Erum við tveir þá mögulega að snúa á Huxa all ærlega, í flokki nýliðapúka?
[Ljómar upp]
Skál ! Oss datt í hug að hjer hefði átt sjer stað laumupúkun fyrir stuttu.
Skál! Mér datt í hug að þér hefði dottið það í hug, en kom um leið á óvart að fleirum skyldi ekki hafa dottið það í hug heldur látist glepjast af dylgjum óvina ríkisins um meinta sektarkennd kvenna.
Ég þakka kærlega fyrir kvöldið öllsömul, þetta var hin prýðilegasta skemmtun. Þið eruð algjörir kóbaltmolar öll með tölu. [Ljómar upp!]
Ég er að hugsa um að taka upp þann sið að ef ég rita í efnisreit gamalla innleggja frá mér þá ætla ég að enda innleggið á ".." [Ljómar upp!]
Nei, engar gæsalappir eða sviðsljómanir bara punktarnir tveir. [Hummar grunsamlegan lagstúf]
Er ég alls staðar fyrstur að laumast þetta árið? <Klórar sér í höfuðstafnum>
Nei. Vjer ákváðum nefnilega að nota lokaorð yðar sem vísbendingu [Ljómar upp].
Gleðilegt ár, laumupúkar. Nú bíðum vjer 9. mars með óþreyju [Ljómar aftur upp].
Hvernig í launhelgum laumupúkum stendur á því að hjer hefur enginn laumupúkast í þessum mánuði ? Skál !
Er ekki betra að einhver með almennilegar klær sjái um að klóra. Hvar er Tigra ?
Með þessu áframhaldi verða innleggin hjer orðin 1000 eftir 2-3 ár. Gaman væri ef það gerðist aðeins fyrr [Ljómar upp].
U.þ.b. 520 innlegg í september og 618 eða svo núna... 100 innlegg á 6 mánuðum. Heldur rólegt.
[Herðir róðurinn]
Þetta er nær því að vera eitt á viku. Eru það eigi fullnægjandi laumupúkunarafköst.
Þetta varð að vera ein á viku, þar sem ég kann svo illa við að vera með 7 innlegg í röð án þess að aðrir komi á milli.
En þökk sje þessu innleggi voru þurfið þjer ekki einu sinni að vera með tvö innlegg í röð hjer [Ljómar upp].
Rafmæliskveðjur til plebbans - plebbins- plebbin , allavega rafmæliskveðjur í dag.
[Dæsir]
Vladimir Fuckov
Er ekki betra að einhver með almennilegar klær sjái um að klóra. Hvar er Tigra ?
Hvar þarf klór?
Það tilkynnist hjer með óopinberlega að vjer óskum plebbin hjer með formlega til hamingju með rafmælið. Hjer er alltaf gaman að laumupúkast. Skál !
PS Enginn hefur enn fundið laumupúkaþráðinn sem vjer stofnuðum 12. mars 2008. Hann er m.a.s. af nýrri tegund [Ljómar upp].
Rafmæliskveðjur á þráðinn! Skál!
(Hann hlýtur að finnast á endanum)
[Horfir rannsakandi á innlegg Vlads]
Nú er kominn nýr mánuður. Nú er tímabært að laumupúkast. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Nei, GAAAAAAAAAS tengist meðmælum. Eru það annars ekki meðmæli að vera á móti mótmælum?
Ógnarfas í bílabrasi
blandað asa, fipar.
Löggan þrasi lauk með gasi,
lék um nasir pipar.
Orðið ,,GAAAAAAAAAS'' er hér með titlað Orð Ársins 2008 af mér, sjálfskipuðum orðamálaráðherra Bagglútíska heimsveldisins.
Ég get nú kannski fengið einhvern til þess að kasta eggi rétt á meðan við erum live á eftir.
Það er örugglega áhrifaríkara að kasta eggi meðan við erum lifandi. Hálf tilgangslaust þegar við erum dauð.
Ég var bara rétt í þessu að uppgötva þennan laumupúkaþráð. [Laumar púka þræði] Er eitthvað svona í gangi á fleyri stöðum?
Vladimir: PS Enginn hefur enn fundið laumupúkaþráðinn sem vjer stofnuðum 12. mars 2008. Hann er m.a.s. af nýrri tegund [Ljómar upp].
Er hægt að fá vísbendingu?
Forstjóri Hlerunarstofnunar fann hann nýlega.
Hefur annars einhver skoðanir á því hvort óæskilegt sje að þessi þráður verði bráðum e.t.v. ekki lengur lengsti laumupúkaþráðurinn ?
Ég er búin að finna þráð stofnaðan 6. mars 2008, en ætla ekki að kvitta. Verð samt að láta vita t.d. hér.
Hvar skyldi sá vera sem er stofnaður 12 mars?
Vjer fundum líka mjög nýlega þráðinn er Regína minntist á <Laumupúkast>.
<Fer í fýlu og nennir ekki að leita að öllum þessum þráðum, enda er ekkert fjör í flippinu lengur>
Það tilkynnist hjer með óopinberlega að brátt fjölgar innleggjunum hjer um eitt. Þess ber þó að geta að þegar einhver les þessa tilkynningu verður sú fjölgun þegar búin að eiga sjer stað.
Mikið er nú gaman að geta loksins laumupúkast hjer - og það m.a.s. fyrir opnun Gestapósins [Ljómar upp eins og plútóníumfriðarsúla].
Ætli hann hafi ekki verið að laumupúkast í raunheimum. Allskonar skúmaskot til þess þar.
Já já já já já já já já já já já já já já já já já já já já já já já já
------------------------
------------------------------------
---------------------------------------
------------------------------------
-------------------------
Til hamingju með rafmælið og skál !
PS Þess ber að geta að rafmæliskveðjan er til plebbins en eigi umfjöllunarefnis fjelagsritsins.
Mér var að detta í hug... hvort ég ætti að laumupúkast eitthvað í kvöld? Svar óskast sem fyrst...
Djöfullinn, ég missti af fjögurra ára rafmæli Leoncie fyrir fjórum dögum! [Blótar herfilega og rífur hár sitt]
[Hrökklast afturábak og hrasar við]
Meira en tveir mánuðir síðan vjer höfum komið hingað ?! Það er alltof langur tími.
Skál ! [Sýpur á fagurbláum laumupúkadrykk]
Ef Plebbin talar í 3. persónur, hví er þetta félagsrit þá i 1. persónu?
Jú, í dag er hátíðardagur laumupúka. Það gleður oss að einhver skuli muna eftir honum [Ljómar upp].
Getur annars einhver skýrt hið undarlega samband sem virðist vera milli ákveðinnar 'tegundar' söngs og nafna sem byrja á Leon ? [Klórar sjer í höfðinu]
Ég var að átta mig á því að ég hef aldrei laumupúkast á þessu riti. Algjör skömm.
Fullt tilefni er til að laumupúkast hjer núna í tilefni af rafmæli höfundar fjelagsritsins. Skál, þjer Lútsins laumupúkar ! [Ljómar upp]
Sökum lítillar laumupúkunar að undanförnu er fullt tilefni til að bæta úr því með því gægjast aftur hjer inn. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Sé að Úbbi kíkti 30. mars var það það sem olli fréttinni: "Leoncie reið Útvarpsstjóra"?
Til hamingju plebbin, það er rafmæli hér!
Þú átt rafmæli' í dag svo við skálum... í ker?
Júróvisjonneisjon veit ei fokk hvað hér er,
Enda fáfróðir sauðir, já skálum með þér!
Til hamingju plebbin, ógeðslegur leirburður í rafmælisgjöf!
Það tilkynnist hjer með opinberlega að komið er nýtt ár. Skál þjer Lútsins laumupúkar !
Það tilkynnist hjer með óopinberlega að oss finnst alltof lítið hafa verið laumupúkast hjer að undanförnu. Notum vjer því rafmæli höfundar fjelagsrits þess er laumupúkaþráður þessi tilheyrir sem tilefni til að laumupúkast hjer og óska hinum horfna höfundi fjelagsritsins til hamingju með rafmælið. Skál !
Sjálfur er ég ekki nærri nógu duglegur við að líta á laumusvæðin, spurning um að bæta lítillega úr því.
Janus am Imotam!
og ennfremur
http://www.google.com/search?hl=en&q="Texi+Everto" ;
Ég veit ekki af hverju ég á leið hér um í dag, þegar ég er eiginlega hætt að laumupúkast. En skál fyrir því!
Hvur rækarlinn, er þetta fyrsta laumupúkun á því herrans ári 2013? Sveimérþá!
Góðan daginn. Þetta er nú aldeilis skemmtileg lesning. Hví er ég að fatta svokallað laumupúk fyrst núna?
Hjer er gaman að laumupúkast á hátíðardegi laumupúka 9. mars 2018 kl. 23:57 (þó Gestapódagsetning sú er hjer birtist kunni að gefa annað til kynna; sú dagsetning er röng).
Skál!
Bíddu er þetta tímavjelin margfræga Vladimir, eða ýttuð þjer á rangan hnapp?
Vladimir ýtir aldrei á ranga hnappa. Það eru hnapparnir sem eru rangt staðsettir. Já og núna er miður ágúst 2018 og því aðeins 4 mánuðir til jóla.
Nú er hátíðardagur laumupúka, þ.e. 9. mars á því laumupúkans ári 2022, og er klukkan núna 23:58 (þó Gestapóið sýni ranglega einhverja aðra dagsetningu og tíma hjer). Skál! [Sýpur á fagurbláum, sjálflýsandi drykk]