Já, þetta var nú meira gabbið.
Já, þetta var nú meiri dagurinn.
Þaulútpæld árás á okkur saklausa baggalúa sem féllum eins mikið fyrir því og hægt var. Anskotans skæruliðar.
Þetta var nú ekki svo slæmt ef á botninn er hvolft.
Limbri lét sjá sig aftur, Ormlaug steig framm með sinn kynþokka og Baggalútar þjöppuðust saman og voru tilbúnir að berjast framm í rauðan dauðann. Þetta fékk líka menn til að huxa sinn gang og meira fleira.
Þó hefði plebbin nú heldur betur líkað það ef þetta kjaftæði hafi aldrei komist upp á yfirborðið. Því hérnameginn var plebbin komið í stríðsbúninginn sinn og var reiðubúið til að gera atlögu á Félag Femínista á Íslandi.
En bölvað vondukallafélagið gabbaði "okkur" allhressilega, sem þeir munu fá borgað þótt síðar verði!
góðar stundir,
plebbin
Langan ber hann lokkinn, lemjum drullusokkinn.
bara með gríni og meira gríni hahaha
Atburðir liðinna daga segja meir en mörg orð um væntumþykju okkar í garð Baggalútíu.
Ég held að ritstjórn sitji nú í skúmaskoti og felli gleðitár vegna tryggðar okkar. SKÁL!!
Já, skál ! [Sýpur á drykk sem er óvenju mikið blár enda eigi vanþörf á eftir það sem á undan er gengið]
Já, samt óþolandi hve fljótir sumir voru að grípa það að hér væri einhver sökudólgur annar en...jæja læt það ógert að nefna fíflin, þau eru nógu slæm fyrir þó maður fari ekki að espa þau upp... jesús, nú fer ég að sofa...
Hvers vegna eru menn svona aestir út í feminista? Varla þarf að gera kvenkynsmeðlimum Baggalúts grein fyrir því að það er feministum að þakka að þaer eru ekki hlekkjaðar við eldavélina frá 12 ára aldri. Áfram feministar!