Já, það er sama í hvaða skúmaskot maður kíkir, alltaf skulu þau vera morandi í laumupúkum. [Tístir af hlátri]
Ég ætla eina umferð í dag eða í gær var það, þar sem ég byrjaði hinu megin við miðnættið.
Ég er búin að finna helling af laumuþráðum, og suma aftur eftir langt hlé.
Enn hef ég samt ekki fundið kvennaþráðinn eða fyrripartaþráðinn. Sömuleiðis rámar mig í að einhverntíma í fornöld hafi Júlía gortað af laumupúkaþræði sem var svo laumulegur að örgustu erkilaumupúkar voru ekki búnir að finna hann. Enn hef ég ekki séð til neins Júlíulaums.
Þar að auki vantar mig nokkra búta í Flipp 13 púsluspilið. Og ég er að leita að þræðinum þar sem ég kynntist Texa almennilega, fyrir löngu síðan.
[Tekur upp sveðju og heldur áfram að höggva sér leið, afar skipulega, í gegnum laumupúkafrumskóginn]
Þú leitar langt yfir skammt að kvennalaumupúkaþræðinum. Fyrri-partaþráðinn finnurðu örugglega innan tíðar. Hvar kynntistu Texa fyrir löngu síðan?