Nú vantar Aðalöndina til að segja hjer viss orð [Glottir eins og fífl].
Frábært rit. Alveg æðislegt. [Ljómar]
Annars finnst mér gott að sjá að þú ert vaknaður gamli.
Stórgott. Skrambi er eitt af þessum skemmtilegu orðum. Fer alveg í flokk með nenna.
Það væri nokkuð napurt ef þér gætuð séð yður fært um að eyða þessu óriti ekki seinna en í gær!
Farið svo að loka þessu Gestapói.
Það þurfti þá ekki meira en þetta til að fá gamla meinhornið til að rísa upp frá dauðum. Þú ert svo sannarlega veikgeðja og ístöðulaus eins og við hin. En það er verulega gaman að sjá þig aftur Kimi. Skál og prump...
Þú ert veikgeðja gamalmenni þarna saurþjappan þin! Amma þín hitti mig um daginn og gaf mér köku.
Hún sagði mér reyndar að þú værir óttalegur aumingi...
Kimi kúkur. Þú hefur verið að einhverju skynvillandi efnarúsi ef þú þykjist hafa hitt ömmu mína. Sú þeirra sem lengur lifði, dó 1976. En .það er samt gaman að þú skulir hafa komið aftur...
[Hrökklast afturábak og hrasar við]
Undanfarandi athugasemd gæti þýtt að Jóakim sje í hópi þeirra að því er virðist óteljandi tímavjelarþjófa er sífellt eru að uppgötvast. Sje svo förum vjer hjer með formlega fram á að hann skili tímavjelinni strax, þ.e. í gær (í bókstaflegri merkingu).