Í reykfylltu herbergi hittast þeir tvisvar í viku
og hlæja að þeim sem þeir stálu frá, prettuðu og sviku.
Í vindlingum kveikja með knippi af seðlunum bláum
og kúga út símleiðis helling af vilyrðum - jáum.
Svo grípa þeir brosandi breiðast í fáséð eitt spil
því breytir ei gengi né hátt verðhrun peningabréfa.
Og í gegnum mökkinn ég kaldur og klökkur það skil
að komið er að honum Upprifnum loksins að gefa.