Mér fannst þessi setning of flott til að setja hana ekki á blað... afsakið röflið!
Í lífinu er doldill lúser
ljóskurnar horf´ekk´á mig
Ek um á kengbognum krúser
kominn á þunglyndisstig
Rangeygur reika um strætin
rúllandi fullur með hor
í nefi og nístandi kuldinn
neyðir mín síðustu spor
heim þar sem leiðinn og lundin
lyftist við netheimsins undrin.
Á netinu er ég nagli
ég get leikið mig frískan og fríðan
ferlega kláran og síðan
ég netkynlíf með nettri gellu næ mér í.
Á netinu heiminn ég skil.
Netið er allt sem ég vil
Hver þarf raun og sann
þegar netið á hann kann?
Stórskemmtilegt en þó er óþarfi að taka sjerstaklega fram að á Netinu sjeuð þjer nagli sökum þeirrar alkunnu staðreyndar að raunheimar ei eru til. Skál !