Já... þetta er ekki nógu gott, ég var meira að segja farinn að pirra mig yfir Günther fyrir að vera ekki nógu pirraður fyrir hönd okkar sem erum ekki með firefox... ætli það sé ekki kominn tími á að hvíla sig á Gestapó, fram yfir sumarfrí...
Ég ætla að finna kimma í fjöru á morgun og fjargviðrast eilítið við hann.
Hvað er verið að æsa sig yfir svona tittlingaskít... Eða réttara sagt, yfir svona andadriti. Hann er bara með einhverja minnimáttarkennd, sem brýst út í barnaskap. Ég legg til að hann verði bara látinn í friði, þá hættir hann þessu flljótlega.
Æ æ. Klagaðirðu í Enter? Sagðirðu: ,,Hann byrjaði"?
Ég fæ engan mun séð á því að gera hlutinn einu sinni eða tvisvar. Stigsmunur jú, en enginn eðlismunur. Svo var það ekki ég sem tróð hin félaxritin af forsíðunni. Hinir ,,góðu og gegnu" Gestapóar sáu alfarið um það. Þessir sem þér finnst svo gaman að leika þér við. Svo rosalega fallega í litla sandkassanum ykkar...
Er það svo ,,barnalegt" þegar ég geri það, en hægt að hunza það þegar eitthvað himpigimpi af hxxx gerir það? Af hverju er ekki hægt að hunza það þegar ég geri það?
Ég mun ekki hætta að vera ,,fokkleiðinlegur" eða fara ,,alvarlega í taugarnar á þér". Klagaðu því bara í Enter.
Ég klagaði nú bara ekki neitt.
Nú snýrðu bara útúr, hinum félagsritunum var troðið af forsíðunni sem beinni afleiðingu af fíflagangi í þér. Fíflagangi sem gerði það að verkum að sumir erfitt að skoða síðuna og virkilega pirraði aðra.
Það að þú sjáir ekki munin á því að gera hlut einu sinni eða tvisvar gerir það ekki að verkum að þar sé enginn eðlismunur. Miðað við einmitt barnalega hegðun þína í þessum verknaði þá finnst mér ekkert óeðlilegt við að þú sjáir hann ekki.
Það væri einmitt auðveldara að hunsa þetta ef þetta væri bara eitthvað fífl útí bæ en ekki friðargæsluliði, viljandi að gera öðrum lífið leitt. (Og það skiptir ekki málið að friðargæslan nái ekki yfir félagsritin).
Jóakim sjálfur mælti svo þann 1. október 2006:
"...mér hefur reyndar Gestapó hafa farið mest aftur þegar þú fórst í þessar skæruliðaaðgerðir Haraldur."
Mér segir svo hugur um að skoðanir hans á skæruhernaið hafi breyst örlítið síðan...
Mér finnst Jóakim töff. Núna þarf hann bara að gera þetta einu sinni í viðbót og þá er meistaraverkið fullkomnað.